Gert er ráð fyrir allt að sex hæða blokkum í nýju deiliskipulagi Óseyrarbrautar 1-3 á Suðurhöfn. Forsvarsmenn Tækniskólans, sem stefna að uppbyggingu nýs skóla á næstu lóð, hafa áhyggjur af umferðaröryggi og skuggavarpi yfir á fyrirhugaðan almenningsgarð skólans.

Nýtt deiliskipulag lóðarinnar Óseyrarbraut 1-3 var samþykkt í skipulags- og byggingaráði þann 20. apríl síðastliðinn. Skipulagið gerir ráð fyrir byggingu allt að sex hæða fjölbýlishúsa með 123 íbúðum.

Fyrirhuguð uppbygging á allt að sex hæðum, horft suður Fornubúðir.

Áhyggjur af öryggi gangandi vegfarenda

Fjölmargar athugasemdir bárust við deiliskipulagstillöguna, m.a. frá forsvarsmönnum Skólastrætis ehf., sem stefnir að byggingu nýs Tækniskóla á næstu lóð við Óseyrarbraut 1-3. Félagið hefur áhyggjur af bæði hæð fyrirhugaðra bygginga og nálægð þeirra við götur, sem það telur að muni ógna öryggi gangandi vegfarenda. Vegagerðin lýsti einnig þeim áhyggjum í athugasemdum við tillöguna.

„Skólastræti tekur undir með Vegagerðinni sem gerir alvarlegar athugasemdir við öryggi vegfarenda, einkum gangandi og hjólandi. Gert er ráð fyrir að nemar og starfsfólk Tækniskólans muni að verulegu leyti nýta almenningssamgöngur og vistvænan ferðamáta til að sækja skóla og aðal aðkoma að skólanum verður um Fornubúðir og Óseyrarbraut,“ segir í athugasemdinni.

Talsvert skuggavarp yfir almenningsgarð

Þá telur Skólastræti ehf. að húsin, sem verða allt að sex hæðir, muni skyggja verulega á almenningsgarð sem félagið hyggst skipuleggja á þeim hluta lóðar fyrirhugaðs Tækniskóla sem er næst Óseyrarbraut 1-3. Þá hefur félagið áhyggjur af því fordæmi sem deiliskipulagið muni hafa á uppbyggingu annarra lóða á svæðinu sem liggja einnig að almenningsgarðinum, sem verður opinn öllum.

„Af skuggavarpi tillögunnar og að því gefnu að byggingarnar standi jafn nærri götunni og í svipaðri hæð á næstu lóðum má ljóst vera að háar byggingar þétt upp við götubrún munu koma til með að varpa skugga á áðurnefndan garð Tækniskólans og skerða þar með gæði opins garðsvæðis,“ segir í athugasemdinni.

Skólastræti ehf. hvetur Hafnarfjarðarbæ til að endurskoða hæð fyrirhugaðra húsa og huga að heildarmynd Suðurhafnar.

„Fulltrúar Skólastrætis telja mikilvægt að huga að heildarmynd svæðisins þar sem nálæg lóð tengist lóð nýs Tækniskóla með beinum og óbeinum hætti. Hagur Hafnarfjarðarbæjar er mikill m.t.t. uppbyggingar beggja vegna Óseyrarbrautar og mikilvægt að stilla af sameiginleg markmið svo að blómlegt mannlíf geti þrifist beggja vegna götunnar öllum til heilla.“

Tölvumynd sem fylgir athugasemd Skólastrætis ehf. sýnir skuggavarp fyrrihugaðra íbúðarhúsa yfir á almenningsgarð Tækniskólans.

Áhyggjur af fyrirséðum umferðarvanda

Fulltrúar Samfylkingarinnar í skipulags- og byggingaráði lögðu til að afgreiðslu deiliskipulagstillögunnar yrði frestar, ekki síst í ljósi áhrifa uppbyggingarinnar á umferðarþunga við Suðurhöfn. Eins og Bærinn okkar hefur áður fjallað um stefnir í ófremdarástand vegna tilkomu nýs Tækniskóla og íbúabyggðar fyrir fjölda manns á svæðinu. Þá hefur Vegagerðin hvatt Hafnarfjarðarbæ til að bíða með skipulag svæðisins þar til búið er að finna lausn á umferðarmálum svæðisins.

Mest lesið

Discover more from Bærinn okkar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading