Þjónustumiðstöð, hótel, baðlón og ylströnd eru meðal hugmynda fjárfesta að uppbyggingu ferðaþjónustu í Krýsuvík og við Kleifarvatn. Samkvæmt fyrirliggjandi viljayfirlýsingu liggur fyrir „gagnkvæmur áhugi“ fjárfesta og Hafnarfjarðarbæjar á að ganga til samninga. Samfylkingin telur of stutt eftir af kjörtímabilinu til að hægt sé að taka ákvarðanir í málinu.
Á fundi bæjarráðs Hafnarfjarðar 16. apríl síðastliðinn var lögð fram kynning Hverabergs ehf. á hugmyndum um uppbyggingu svokallaðs náttúrugarðs á svæðinu auk óundirritaðrar viljayfirlýsingar sem dagsett er 27. janúar 2026. Í henni segir að nú sé kominn „staðfestur gagnkvæmur áhugi“ Hverabergs ehf. og Hafnarfjarðarbæjar á að ganga til samninga um samstarfið.
Baðlón og 400 gesta hótel í „háum gæðaflokki“
Við suðurenda Kleifarvatns verður gert ráð fyrir útivistar- og afþreyingarsvæði „með baðlóni eða ylströnd, heitum og köldum böðum,“ eins og segir í kynningunni. Þar kemur fram að heita og kalda vatn svæðisins verði „notað til að búa til einstaka upplifun í þessu magnaða umhverfi.“ Gert verði ráð fyrir gistiþjónustu í „háum gæðaflokki“ sem falli vel inn í landið og tengist baðlóni eða baðupplifun svæðisins. Samanlögð stærð atvinnuhúsnæðis er sögð 6.000 fermetrar og í hótelinu gætu verið allt að 400 gistirúm.
Einnig hótel og baðlón í Krýsuvík
Í Krýsuvík er einnig gert ráð fyrir uppbyggingu hótels, veitingaþjónustu og jafnvel baðlóns. „Ef til vill yrði um einhvers konar baðlón eða aðra upplifun af heita vatni svæðisins að ræða,“ segir í kynningunni. Gert er ráð fyrir að hótel og annað atvinnuhúsnæði í Krýsuvík verði alls 5.000 fermetrar að stærð og að þar verði einnig hægt að bjóða upp á allt að 400 gistirúm. Lögð er áhersla á að mannvirki falli vel að landi og að jarðmyndunum, gróðri og fuglalífi verði ekki spillt.
Þjónustumiðstöð og nýjar gönguleiðir
Í kynningunni segir að einnig sé gert ráð fyrir uppbyggingu þjónustumiðstöðvar við Krýsuvíkurveg með bílastæði, verslun og veitingasölu. Svæðið yrði vel tengt Seltúni, Grænavatni, Austurengjum og Kleifarvatni með vel merktum gönguleiðum. Þá stendur einnig til að byggja upp innviði við Krýsuvíkurberg, svo sem bílastæði, salerni og göngustíga. „Stefnan er að skapa spennandi áfangastað fyrir Hafnfirðinga og innlenda og erlenda gesti, einstakan náttúrugarð sem vert er að heimsækja.“
Keyptu Fjarðárgljúfur og reisa baðlón í Reykjadal
Félagið Hveraberg ehf. keypti árið 2022 jörðina Heiði í Skaftárhreppi þar sem Fjaðrárgljúfur er að finna. Það vakti nokkra athygli þá að íslenska ríkið hafi ekki nýtt forkaupsrétt sinn á jörðinni, enda um mikla náttúruperlu að ræða. Tveimur árum seinna seldi félagið jörðina til ferðaþjónustufyrirtækisins Arctic adventures. Hveraberg ehf. var stofnað árið 2017 og hefur verið leiðandi í uppbyggingu Gróðurhússins í Hveragerði, en í þeirri byggingu er hótel, auk mathallar og verslunarrýmis. Félagið stendur einnig að uppbyggingu nýs baðlóns, Reykjabaðanna í Reykjadal.
Verkefni næstu bæjarstjórnar
Við afgreiðslu málsins í bæjarráði lögðu fulltrúar Samfylkingarinnar áherslu á að það væri verkefni næstu bæjarstjórnar að leiða málið til lykta í ljósi þess hversu stutt sé eftir af yfirstandandi kjörtímabili.









