Frumvarp ríkisstjórnarinnar um að lífeyrir skuli fylgja launum var samþykkt á Alþingi í dag. Tenging almannatrygginga við launavísitölu miðar að því að stöðva þá kjaragliðnun sem hefur átt sér stað á milli vinnumarkaðarins og þeirra sem geta ekki unnið vegna fötlunar, heilsubrests eða aldurs.

Frumvarpið var samþykkt með 33 atkvæðum ríkisstjórnarflokkanna. Þingmenn Sjálfstæðisflokks og Miðflokks greiddu atkvæði gegn frumvarpinu en Framsókn sat hjá. Stjórnarandstaðan hefur á undanförnum vikum farið mikinn í gagnrýni sinni á frumvarpið, þar á meðal Rósa Guðbjartsdóttir, fyrrverandi bæjarstjóri Hafnarfjarðar.

Dregið úr skerðingum og ráðist í stórátak í fjölgun hjúkrunarrýma

Í lok síðasta árs samþykkti meirihluti Alþingis frumvarp ríkisstjórnarinnar um hækkun frítekjumarks ellilífeyris í 60 þúsund krónur. Þannig mun eldra fólk njóta meiri ávinnings af því að hafa greitt í lífeyrissjóði.

Á dögunum var svo kynnt ný áætlun um fjölgun hjúkrunarrýma sem felur í sér að fram til ársins 2030 mun hjúkrunarrýmum fjölga um 1.500 um land allt. Ný hjúkrunarrými eiga meðal annars að bætast við á Hraunvangi og á nýju hjúkrunarheimili í Vatnshlíð.

Einnig tekist á um hagsmuni eldra fólks í Hafnarfirði

Það er ekki bara á Alþingi sem tekist er á um aðgerðir í þágu eldra fólks því í bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefur meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar í tvígang fellt tillögu Samfylkingarinnar um að ráðist verði í uppbyggingu lífsgæðaíbúa fyrir eldra fólk. Tillaga Samfylkingarinnar er þó í fullu samræmi við tillögu starfshóps sem skipaður var til þess að skilgreina mögulega uppbyggingarreiti fyrir slíkar íbúðir. Starfshópurinn var skipaður fulltrúum meirihluta og minnihluta og skilaði af sér tillögum á seinni hluta síðasta árs.

Mest lesið

Discover more from Bærinn okkar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading