Uppbygging almenna íbúðakerfisins hefur strandað á sveitarfélögum sem neita að úthluta lóðum til óhagnaðardrifinna íbúðafélaga. Þetta sagði Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra í ræðu sinni á baráttudegi verkafólks í Iðnó. Oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði leggur áherslu á að bærinn taki aukinn þátt í endurreisn almenna íbúðakerfisins.

Sláandi munur á húsnæðisöryggi

Í ræðu sinni benti Kristrún á að í rannsókn ASÍ og BSRB á leigumarkaði á árinu 2025 sögðu um 90% leigjenda sem leigja í almenna íbúðakerfinu, af Bjargi eða öðrum óhagnaðardrifnum félögum, að þeir byggju við húsnæðisöryggi. „En aðeins helmingur þeirra sem leigja á markaðsforsendum, af einstaklingum eða félögum með hagnaðarsjónarmið, telja sig búa við húsnæðisöryggi. Þetta er sláandi munur.“

Hörmuleg ákvörðun Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks

Kristrún vakti athygli á arfleið Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks í húsnæðismálum. Það hafi komið á daginn hvað það var „hörmuleg ákvörðun hjá ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar að leggja niður verkamannabústaðakerfið um aldamótin – hörmuleg harðlínupólitík. Sem hefur enn þann dag í dag alvarlegar afleiðingar fyrir húsnæðisöryggi venjulegs vinnandi fólks, og fjölskyldur þess.“

Bæjarstjórn Kópavogs til skammar

Kristrún sagði uppbyggingu almennra íbúða ekki hafa strandað á ríkinu á undanförnum árum. Þvert á móti hafi fleiri milljarðar sem ríkið hafi ráðstafað til þessarar uppbyggingar ekki ratað út í raun. „Vegna þess að alltof mörg sveitarfélög hafa neitað að lyfta litla fingri í þessum málum – neitað standa við sinn hlut og úthluta lóðum til óhagnaðardrifinna íbúðafélaga. Þetta er ótrúlegt ábyrgðarleysi.“

Næst beindi Kristrún spjótum sínum að meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknar í Kópavogi. „Tökum dæmi: Tíundi hver Íslendingur er Kópavogsbúi – en samt hefur bæjarstjórnin í Kópavogi ekki úthlutað einni einustu lóð til Bjargs, sem byggir fyrir tekjulægra vinnandi fólk og tryggir fjölskyldum þess öruggt húsnæði. Núll lóðir – á 10 árum – í næstfjölmennasta sveitarfélagi landsins. Þetta er til skammar – svo ekki sé fastar að orði kveðið.“

Engin uppbygging á vegum Bjargs í Hafnarfirði

Í Hafnarfirði eru 148 íbúðir á vegum Bjargs íbúðafélags. Engar íbúðir hafa bæst við á þessu kjörtímabili og meirihluti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar hefur ekki úthlutað neinum lóðum til félagsins. Nýleg skýrsla Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar sýndi að hlutfall húsnæðisleigu af ráðstöfunartekjum er hæst meðal hafnfirskra leigjenda og samkvæmt greiningu ASÍ og BSRB eru 344 Hafnfirðingar á biðlista eftir íbúð hjá Bjargi.

Samfylkingin taki forystu í uppbyggingu almennra íbúða

Guðmundur Árni Stefánsson, oddviti Samfylkingarinnar.

Guðmundur Árni Stefánsson, oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði, segir að flokkurinn ætli sér stóra hluti í húsnæðismálum á næsta kjörtímabili. Flokkurinn hafi ítrekað lagt fram tillögur um uppbyggingu í samstarfi við óhagnaðardrifin leigufélög en þeim hafi verið hafnað.

„Við jafnaðarmenn munum ráðast í kraftmiklar aðgerðir í húsnæðismálum þegar við tökum við af núverandi meirihluta eftir kosningar. Við munum endurreisa almenna íbúðakerfið með því að stórauka samstarf við óhagnaðardrifin leigufélög og bjóða upp á fjölbreytt og hagkvæmt húsnæði fyrir ungt fólk, fyrstu kaupendur, eldri íbúa, fólk með fötlun, tekjulága og fólk með millitekjur,“ segir Guðmundur Árni. „Þannig verðum við sterkari – saman.“

Mest lesið

Discover more from Bærinn okkar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading