Sigga Foss, eftirlaunaþegi og frambjóðandi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar, fékk í dag fréttir sem hún hefur beðið eftir lengi. Hún er loks komin með íslenskan ríkisborgararétt eftir langa, og á köflum farsakennda, baráttu við Útlendingastofnun.
Barátta Siggu hefur vakið athygli undanfarin misseri vegna þröngra skilyrða sem Útlendingastofnun hefur sett henni, þrátt fyrir 49 ára búsetu á Íslandi. Hún ákvað að sækja um íslenskan ríkisborgararétt fyrir síðustu Alþingiskosningar en ferlið reyndist mun flóknara en hana hefði órað fyrir. Meðal annars þurfti hún að framvísa Bónus-kvittunum til að sýna fram á að hún hefði sannarlega búið á Íslandi. Hún lýsti þessu farsakennda ferli í útvarpsviðtali á Bylgjunni á dögunum.
Siggu barst í dag tölvupóstur frá Útlendingastofnun þar sem henni var tilkynnt um þá ákvörðun að veita henni íslenskan ríkisborgararétt. Guðmundur Árni Stefánsson, oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði, náði myndbandi af augnablikinu þegar hún las upp tölvupóstinn og deildi því á Facebook.
Sigga kynntist íslendingnum Guðmundi Jónssyni í háskóla í Óðinsvéum í Danmörku. Þau fluttu saman til Íslands að námi loknu og hefur Sigga búið á Íslandi síðan, eða í 49 ár. Hún hefur verið virkur félagi í Samfylkingunni í Hafnarfirði og skipar 20. sæti framboðslista flokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.










