Sex smáhýsi sem til stóð að reisa fyrir heimilislaust fólk í Hafnarfirði í byrjun árs 2025 hafa enn ekki verið tekin í notkun. Samkvæmt gögnum frá fjölskyldusviði Hafnarfjarðar eru 33 einstaklingar í bænum skráðir heimilislausir og í brýnni þörf fyrir húsnæði. Ekkert bólar á starfshópi sem átti að móta stefnu bæjarins í málefnum heimilislausra.

Ekki staðið við áform um starfshóp

Í fjárhagsáætlun Hafnarfjarðar fyrir árið 2025 var gert ráð fyrir fjármagni vegna kaupa á sex smáhýsum fyrir heimilislaust fólk. Í greinargerð með áætluninni sagði að vonir stæðu til þess að framkvæmdir myndu hefjast „í byrjun árs 2025“. Búið er að kaupa þrjú hús en þau hafa staðið auð á geymslusvæði bæjarins síðan.

Í sömu fjárhagsáætlun var einnig gert ráð fyrir að stofnaður yrði starfshópur sem átti að móta stefnu Hafnarfjarðar í málefnum heimilislauss fólks, en engin slík stefna er til hjá bænum. Starfshópurinn hefur ekki enn verið settur á fót. Fulltrúar Samfylkingarinnar gagnrýndu þetta á síðasta fundi fjölskylduráðs og sögðu það til marks um að málefni heimilislausra hafi ekki verið nógu ofarlega á forgangslista núverandi meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknar.

Smáhýsi á dagskrá eftir skammir frá umboðsmanni Alþingis

Umræðan um smáhýsi fyrir heimilislausa í Hafnarfirði á sér raunar lengri aðdraganda því árið 2018 hóf fjölskylduráð að skoða leiðir til að tryggja heimilislausu fólki húsnæði í bænum. Það ár hafði umboðsmaður Alþingis framkvæmt frumkvæðisathugun á málaflokknum. Umboðsmaður beindi þeim tilmælum til nágrannasveitarfélaga Reykjavíkur að sinna betur þjónustu við heimilislaust fólk og setja sér stefnu í málaflokknum.

Árið 2020 bað fjölskylduráð skipulagsfulltrúa bæjarins um að finna heppilega staðsetningu undir gámahús fyrir heimilislausa. Ekkert virðist hafa komið út úr þeirri athugun því í fundargerðum er ekki að finna neinar tillögur að staðsetningu undir húsin.

Ári síðar samþykkti fjölskylduráð að taka í notkun sex smáhýsi fyrir heimilislaust fólk. Þeirri samþykkt var vísað til fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2022 en af einhverjum ástæðum voru smáhýsin ekki keypt fyrr en árið 2025. Sjálfstæðisflokkur og Framsókn hafa verið í meirihluta í bæjarstjórn Hafnarfjarðar samfleytt frá árinu 2018.

Tugir heimilislausra á biðlista eftir húsnæði

Í svari við fyrirspurn Samfylkingarinnar um biðlista eftir félagslegu húsnæði, sem lagt var fram í fjölskylduráði í nóvember í fyrra, kemur fram að af 163 einstaklingum á biðlista eru 33 skráðir heimilislausir. Heimilislaust fólk í Hafnarfirði hefur þurft að leita í gistiskýli Reykjavíkurborgar eftir þjónustu og í einhverjum tilfellum hefur fólki verið vísað frá.

Samfylkingin hefur gagnrýnt hversu hægt hefur gengið að fjölga félagslegum íbúðum í Hafnarfirði á yfirstandandi kjörtímabili og lagt til að farið verði í átak sem feli í sér kaup á 15 íbúðum á ári til næstu fimm ára. Þessum tillögum hefur meirihlutinn hafnað, en á kjörtímabilinu hafa verið keyptar að meðaltali 4 til 5 íbúðir á ári inn í félagslega íbúðakerfið. Eins og Bærinn okkar hefur greint frá hefur fjölgun félagslegra íbúða í bænum ekki haldið í við fjölgun íbúa.

Fyrstu smáhýsin rísi við Byggðabraut

Þann 17. september 2024 fjallaði fjölskylduráð um nokkrar tillögur umhverfis- og skipulagssviðs að staðsetningum fyrir smáhýsin. Til stendur að koma þeim fyrir á tveimur stöðum, þrjú hús á hvorum stað. Nú liggur loks fyrir endanleg tillaga að staðsetningu fyrstu þriggja húsanna, en þann 16. október 2025 samþykkti skipulags- og byggingaráð að hefja vinnu við breytingu deiliskipulags við Byggðabraut, á jaðri bæjarins næst álverinu.

Ekki liggur fyrir hver staðan er á þeirri vinnu nú, en það liggur allavega fyrir að enn hefur tillaga að breyttu deiliskipulagi ekki verið tekin til umfjöllunar í skipulags- og byggingaráði. Þá á enn eftir að kynna áformin fyrir íbúum á svæðinu.

Fyrirhuguð staðsetning þriggja smáhýsa við Byggðabraut.

Mest lesið

Discover more from Bærinn okkar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading