Frá aldamótum hefur Hafnarfjarðarbær greitt fasteignafélaginu FM-hús ehf. 6 milljarða króna í leigu af skólabyggingu Áslandsskóla. Leigusamningurinn rennur út á næstu misserum og bænum býðst að kaupa skólabygginguna á 6 milljarða til viðbótar. Oddviti Samfylkingarinnar segir það bíða nýs meirihluta að hreinsa upp eftir „frjálshyggjutilraun Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks“.

Málið var til umræðu á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar þann 6. maí. Þar kom fram að Hafnarfjarðarbær hafi frá árunum 2001 og 2002 greitt samtals 8 milljarða króna í leigu vegna Áslandsskóla og leikskólanna Tjarnaráss og Hörðuvalla. Þar vegur þyngst leigan á skólabyggingu Áslandsskóla, en hún hefur kostað bæinn alls 6 milljarða króna á verðlagi ársins 2026.

Misheppnuð frjálshyggjutilraun

Nú þegar leigusamningarnir fyrir þessar skólabyggingar eru að renna út þarf Hafnarfjarðarbær að semja um framlengingu samninganna eða kaup á skólabyggingunum. Samkvæmt upplýsingum sem bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar kölluðu eftir býðst bænum að kaupa Áslandsskóla á 6 milljarða og leikskólana á 2 milljarða til viðbótar, en það eru jafn háar fjárhæðir og bærinn hefur þegar greitt eigendum skólabygginganna í leigu.

Um svokallaða einkaframkvæmdarsamninga var að ræða, sem fela það í sér að í stað þess að sveitarfélagið fjármagni sjálft uppbyggingu og rekstur skólahúsnæðis þá feli það einkaaðilum framkvæmdina og leigi svo byggingarnar af þeim til lengri tíma. Guðmundur Árni Stefánsson, oddviti Samfylkingarinnar, segir um að ræða frjálshyggjutilraun Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks sem hafi mistekist hrapallega.

Úrlausn málsins bíði næsta meirihluta

Guðmundur Árni Stefánsson, oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði.

„Jafnaðarmenn gagnrýndu harðlega þessa ákvörðun Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks og bentu á að þegar kæmi að lokum leigutímans gæti það orðið niðurstaðan að bærinn yrði að eignast fasteignirnar, sem er í raun mikilvægt, en þá myndi það kosta bæjarsjóð milljarða króna ofan á há leigugjöld í rúm 25 ár,“ segir Guðmundur Árni. „Nú þegar leigutíminn er að renna út þá er þetta einmitt að koma á daginn. Skólarnir eru til sölu og verðmiðinn er í kringum 8 milljarða og lausn ekki í sjónmáli.“

Hann bendir á að úrlausn á þessum „stórkostlegu rekstrarmistökum Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks“ sé verkefni sem bíði næsta meirihluta bæjarstjórnar. „Meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks skilur bæjarstjórn eftir með þessa óvissu yfir sér og það verður því nýrrar bæjarstjórnar, sem kjörin verður 16. maí næstkomandi, að greiða úr afleiðingum einkaframkvæmdarævintýris og frjálshyggjutilraunar Framsóknar- og Sjálfstæðisflokksins,“ segir Guðmundur Árni að lokum.

Mest lesið

Discover more from Bærinn okkar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading