Tónlistarkonan Björk stendur fyrir svokallaðri Sólmyrkvahátíð á Víðistaðatúni í Hafnarfirði þann 12. ágúst. Þetta tilkynnti hún á samfélagsmiðlum sínum í gær. Búast má við að allt að sex þúsund tónleikagestir leggi leið sína á Víðistaðatún til að upplifa almyrkva á sólu undir taktföstum tónum Bjarkar og félaga.
Auk Bjarkar kemur fram tónlistarfólkið Arca, Ronja og Sideproject, og fleiri sem verða tilkynnt síðar. Í auglýsingu fyrir tónleikana segir að þeir muni standa yfir meðan á sólmyrkvanum stendur og „þar til seint“, en samkvæmt heimildum Bæjarins okkar er gert ráð fyrir að þeir standi frá 15:00 til 22:30. Í Hafnarfirði mun almyrkva á sólu gæta í eina mínútu og fjórar sekúndur.
Miðasala hefst föstudaginn 10. apríl klukkan tíu á vefnum Tix.is. Tónleikafyrirtækið Garcia Events stendur að baki viðburðinum.
Leggja áherslu á samstarf við lögreglu
Erindi frá Garcia events var á dagskrá bæjarráðs þann 20. mars síðastliðinn og aftur 30. mars. Þá tók bæjarráð jákvætt í erindið og lagði áherslu á gott samstarf við viðburðahaldara og lögreglu. Bæjarstjóra var falið að vinna málið áfram.









