Fulltrúar Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Hafnarfjarðar lögðu það til á síðasta bæjarstjórnarfundi að byggðar yrðu lífsgæðaíbúðir fyrir eldri borgara í Hafnarfirði á Sólvangssvæðinu í samstarfi við Félag eldri borgara og aðra aðila. Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar hafnaði tillögunni þrátt fyrir að hún eigi rætur í þverpólitískum starfshópi um uppbyggingu íbúða fyrir eldra fólk.
Slíkar íbúðir fyrir aldraða gætu, að sögn fulltrúa Samfylkingarinnar, risið á næstu 18 mánuðum ef tillagan hefði verið samþykkt. Í staðinn lögðu meirihlutaflokkarnir til athuga hversu margir eldri borgarar byggju í bænum, og að fela bæjarráði að vinna að gerð 10 ára uppbyggingaráætlunar um lífsgæðaíbúðir fyrir eldra fólk.
Afstaða fulltrúa meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks til tillögu Samfylkingarinnar vekur furðu í ljósi þess að í byrjun kjörtímabilsins lagði meirihlutinn til að vinnu við uppbyggingu íbúða fyrir eldra fólk yrði hraðað og nefndu Sólvangssvæðið sérstaklega í því sambandi. Síðan hefur lítið gerst í málinu. Það var ekki fyrr en Samfylkingin lagði til að stofnaður yrði starfshópur um uppbyggingu á íbúðum fyrir eldri borgara í Hafnarfirði að hreyfing komst á málið. Starfshópurinn skilaði af sér góðri skýrslu og vel ígrunduðum tillögum í október á síðasta ári. Tillaga Samfylkingarinnar í bæjarstjórn var einmitt lögð fram á grundvelli tillagna fyrrnefnds starfshóps.
Langt er um liðið síðan þjónustuíbúðir fyrir eldra fólk voru byggðar í Hafnarfirði af hálfu bæjarins, eða 1992, og það er mat starfshópsins að uppbygging lífsgæðaíbúða sé brýnt hagsmunamál fyrir eldri íbúa í Hafnarfirði og bæjarfélagið í heild til framtíðar. Það sé því ekki eftir neinu að bíða og nú þurfi að láta verkin tala.
Oddviti Samfylkingarinnar í bæjarstjórn, Guðmundur Árni Stefánsson, segir afstöðu meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks lýsia fullkominni uppgjöf gagnvart mikilvægum og nauðsynlegum verkefnum í þágu bæjarbúa. Samfylkingin muni halda málinu til streitu og ef meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks haldi áfram að þvælast fyrir málinu þá muni Samfylkingin einfaldlega tryggja það að byggðar verði verði lífsgæðaíbúðir fyrir eldra fólk í Hafnarfiði í nýjum meirihluta að loknum kosningum 16. maí nk.










