Valdimar Víðisson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, lenti í vandræðum í pallborðsþætti Vísis í gær þegar talið barst að ráðgjafarsamningum bæjarins við fyrrverandi áhrifamenn í Sjálfstæðisflokki og Framsókn. Fyrrverandi oddviti Framsóknar í Hafnarfirði hefur fengið 7 milljónir króna frá bænum eftir að Valdimar tók við sem bæjarstjóri.

Flokkshollir ráðgjafar sem hafa ekki skilað árangri

Guðmundur Árni Stefánsson, oddviti Samfylkingarinnar, vakti máls á ráðgjafarsamningunum í pallborðsumræðum oddvitanna á Vísi í gær. Umræðuefnið var mikill hallarekstur bæjarins og mögulegar leiðir til hagræðingar í rekstrinum. Hann lagði til að ráðgjafarsamningar við „flokksholla Framsóknarmenn og Sjálfstæðismenn“ yrðu endurskoðaðir.

„Þessir herramenn [Valdimar Víðisson, bæjarstjóri og Orri Björnsson, formaður bæjarráðs] hafa verið að kalla til ráðgjafar einstaklinga, flokksholla Framsóknarmenn og Sjálfstæðismenn, til þess að vinna í samningamálum um Tækniskólalóðina án mikils árangurs,“ sagði Guðmundur Árni. Þar vísaði hann til ráðgjafastarfa Ágústs Bjarna Garðarssonar, fyrrverandi oddvita Framsóknar í bæjarstjórn Hafnarfjarðar, og Haralds Sverrissonar, fyrrverandi bæjarstjóra Mosfellsbæjar.

Matarhola sem hægt er að loka

Eins og Bærinn okkar sagði frá á dögunum hefur félag Ágústs Bjarna fengið 7 milljónir króna í verktakagreiðslur frá Hafnarfjarðarbæ eftir að Valdimar Víðisson, flokksbróðir hans, varð bæjarstjóri. Greiðslurnar voru bókfærðar sem „verkfræði og arkitektaþjónusta“ þrátt fyrir að Ágúst Bjarni sé hvorki verkfræðingur né arkitekt.

Guðmundur Árni sagði að þó þetta væru ekki háar fjárhæðir í stóra samhenginu þá væri þarna vissulega tækifæri til að spara. „Þetta skiptir auðvitað ekki sköpum en sýnir hugarfarið hjá þessum ágætu mönnum og þetta er matarhola sem sannarlega er hægt að loka,“ bætti Guðmundur Árni við.

„Ekki svaravert,“ segir bæjarstjóri

Valdimar brást illa við þessum sparnaðarráðum Guðmundar Árna. „Varðandi það sem Guðmundur Árni er að vísa í, sem er varla svaravert, þetta er allt saman innan heimilda þegar leitað er ráðgjafar hjá hinum og þessum aðilum,“ sagði hann og lagði áherslu á að þetta væru tímabundin verkefni.

Berghildur Erla Bernharðsdóttir, fréttamaður, spurði þá hvort viðkomandi ráðgjafar hafi haft einhver pólitísk tengsl, eins og nefnt hafi verið. Skaut Guðmundur Árni þá inn í að hann hafi bara séð skrifað um það í blöðunum.

„Það er verið að leita til ákveðinna aðila til tímabundinna verkefna sem eru kannski í nokkra mánuði eins og í öðru tilfellinu. Hitt var til tveggja, þriggja ára, þar sem var fenginn inn bæjarstjóri af höfuðborgarsvæðinu sem hefur mikla reynslu af lóðamálum og uppbyggingu á lóðum og svo framvegis og er að sérhæfa sig í þeim verkefnum,“ sagði Valdimar.

Verkefnin ókláruð

Guðmundur Árni sagði það í sjálfu sér engu máli skipta úr hvaða flokkum fólk komi ef það skili af sér verkefninu. „Í þessu tilfelli þá er það því miður þannig að verkefnið var ekki klárað. Það laut fyrst og síðast að lóð vegna nýs Tækniskóla sem er fullkomlega óklárað mál. Þannig að það verður nýs meirihluta að klára það verkefni eins og svo fjölmörg, því miður, sem þessir ágætu menn hafa verið að vinna að.“

Mest lesið

Discover more from Bærinn okkar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading