Ótrúleg uppákoma átti sér stað í byrjun bæjarstjórnarfundar í dag þegar forseti bæjarstjórnar lagði til að tvö mál Samfylkingarinnar yrðu tekin af dagskrá fundarins. Að tillögu forseta bæjarstjórnar samþykkti meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks að taka tillögur Samfylkingarinnar um frítt í strætó fyrir 12 – 17 ára ungmenni og uppbyggingu íbúða fyrir eldra fólk á Sólvangsreitnum af dagskrá bæjarstjórnar.
Þetta hafði forseti ekki rætt í forsetanefnd heldur einungis ráðfært sig við fulltrúa meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks. Þegar málum sem ekki eru á dagskrá er bætt við er það gert með því að leita afbrigða og þarf aukinn meirihluta eða ⅔ bæjarstjórnar til þess að samþykkja það. Að mati forseta bæjarstjórnar og meirihlutans á það ekki við þegar mál, sem meirihlutinn telur óþægileg, eru tekin af dagskrá. Þá dugir að beita einföldu meirihlutavaldi.
Ofríkistilburðir og ólýðræðisleg vinnubrögð
Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar lögðu fram harðorða bókun vegna málsins þar sem „ólýðræðisleg vinnubrögð Sjálfstæðisflokks og Framsóknar“, sem sögð eru fordæmalaus, eru gagnrýnd harðlega. Telur Samfylkingin þetta sýna að meirihlutinn forðist óþægilega umræðu um mikilvæg mál.
Málin sem meirihlutinn tók af dagskrá snúa annars vegar að því að ókeypis verði í strætó fyrir börn undir 18 ára aldri og hins vegar að ráðist verði í uppbyggingu lífsgæðaíbúða fyrir eldra fólk á Sólvangsreitnum.
Ætla að leita til ráðuneytisins vegna málsins
Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar segja það viðtekna venju að þegar lagt sé til að breyta fyrirliggjandi dagskrá bæjarstjórnarfunda þurfi að samþykkja það með 2/3 hluta atkvæða. Þeir segjast enn fremur áskilja sér allan rétt til að vísa þessu „dæmalausa máli“ til úrskurðar ráðuneytis sveitarstjórnarmála.
Bókun bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar í heild sinni:
Fulltrúar Samfylkingarinnar gagnrýna harðlega ólýðræðisleg vinnubrögð Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks sem koma fram í ofríki meirihlutans þar sem knúið er í gegn með einfaldri meirihlutaákvörðun að taka veigamikil mál af dagskrá sem varða málefni bæjarins og íbúa, sem er án fordæma. Samfylkingin óskaði eftir að taka til umræðu tillögur sem voru á útsendri dagskrá fyrir fundinn. Málin snúa að “Frítt í strætó fyrir 12 – 17 ára ungmenni” málsnr. 2601425 og “Íbúðir fyrir eldra fólk” málsnr. 2206161 á Sólvangssvæðinu.
Greinilegt er að meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks forðast umræðu um þessi mál eins og heitan eldinn og nú beitir hann fyrir sig fundarsköpum til þess að koma í veg fyrir efnislega umræðu og að mikilvæg mál fái framgang. Samfylkingin mun ekki láta þessa ofríkistilburði og ólýðræðislegu vinnubrögð meirihlutans koma í veg fyrir ítarlega umræðu um þessi mál á vettvangi bæjarstjórnar og ráðum og nefndum sveitarfélagsins á næstu vikum fram að kosningum. Við munum áfram halda þessum málum á lofti sem varða hag og velferð ungmenna og eldri íbúa í Hafnarfirði á lofti hvað sem líður hræðslu meirihlutans að ræða þau með lýðræðislegum hætti.
Viðtekin venja er þegar lagt er til að breyta fyrirliggjandi dagskrá bæjarstjórnarfunda að leita afbrigða sem kallar á aukinn meirihluta eða ⅔ hluta atkvæða, til að tryggja almennan vilja fundarmanna til breytinga á fyrirliggjandi dagskrá. Það á við þegar málum er bætt við á dagskrá eða þau tekin af dagskrá. Þá skal beitt afbrigðum og kallað eftir auknum meirihluta í bæjarstjórn. Þess vegna stenst það ekki almenn fundarsköp að einfaldur meirihluti bæjarfulltrúa meirihlutans dugi til að henda út óþægilegum málum, sem eru fram sett af bæjarfulltrúum Samfylkingarinnar í minnihluta.
Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar áskilja sér allan rétt til að vísa þessu dæmalausa máli, sem er án fordæma, til úrskurðar ráðuneytis sveitarstjórnarmála. Með þessari gjörð er lýðræðið fótum troðið í bæjarstjórn Hafnarfjarðar.









