Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði dreifðu um helgina súluriti með röngum upplýsingum um meðalaldur barna við innritun í leikskóla í nokkrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Þegar oddvita flokksins var bent á að tölfræðin væri ekki rétt sagði hann að gervigreind hafi „kokkað hana upp.“

Ólíkum tölum ruglað saman

Súluritið er sagt sýna samanburð á meðalaldri barna við innritun í leikskóla í Hafnarfirði, Garðabæ, Kópavogi, Reykjavík og Reykjanesbæ. Samkvæmt súluritinu er meðalaldurinn 14 mánuðir í Hafnarfirði, 12 mánuðir í Garðabæ og Kópavogi, 22 mánuðir í Reykjavík og 24-29 mánuðir í Reykjanesbæ.

Við nánari athugun kemur þó í ljós að súluritið styður við rangar tölur í tilfelli Hafnarfjarðar, Garðabæjar og Kópavogs. Meðalaldur barna við innritun í leikskóla haustið 2025 var ekki 14 mánuðir í Hafnarfirði heldur 17,7 mánuðir. Þá var hann 15 mánuðir í Garðabæ og 19,7 mánuðir í Kópavogi. Sama ár var meðalaldurinn í Reykjavík 20,4 mánuðir, ekki 22 mánuðir eins og haldið er fram.

Rangur samanburður en hagstæður fyrir Sjálfstæðisflokkinn

Tölurnar sem eru sagðar vera meðalaldur barna við innritun í leikskóla í Hafnarfirði, Garðabæ og Kópavogi eru alls ekki meðalaldur heldur inntökualdur, þ.e. hversu gömul yngstu börnin eru sem er boðið leikskólapláss að hausti. Inntökualdurinn er talsvert lægri en meðalaldur barna upphaf leikskólagöngu.

Svo virðist sem höfundur súluritsins hafi annað hvort ruglast eða vísvitandi valið tölur sem gefa hagstæðari mynd af stöðunni í Hafnarfirði, Garðabæ og Kópavogi, en það vill svo til að í þeim sveitarfélögum er Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta. Bæði Orri Björnsson, oddviti flokksins í Hafnarfirði, og Kristín Thoroddsen, formaður fræðsluráðs Hafnarfjarðar, deildu súluritinu á Facebook.

Upplýsingaóreiða kokkuð upp af gervigreind?

Gunnar Axel Axelsson, fyrrverandi bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, gerði athugasemd við framsetninguna á vegg Orra og spurði hvaðan tölfræðin kæmi. Orri svaraði um hæl: „AI [gervigreind] kokkaði þetta upp af alnetinu.“ Óskar Steinn Ómarsson, frambjóðandi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði, skrifaði einnig athugasemd við færslu Kristínar Thoroddsen en svo virðist sem hún hafi falið athugasemdina svo aðrir myndu ekki sjá hana.

Notkun gervigreindar og tengsl hennar við upplýsingaóreiðu hafa verið talsvert til umræðu að undanförnu. Í grein sem Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, skrifaði á Vísi þann 9. apríl sl., hvatti hún landsmenn til ígrundunar um notkun gervigreindar. Sagði hún gervigreindina geta „á andartaki framleitt efni sem virðist trúverðugt en er villandi, dreift óstaðfestum upplýsingum með ógnarhraða og haft áhrif á skoðanir okkar og líðan með hætti sem við gerum okkur ekki alltaf grein fyrir.“

Svo virðist sem viðvörunarorð Forsetans hafa ekki náð eyrum Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði, sem nýta nú gervigreindina til að „kokka upp“ tölfræði til að koma höggi á pólitíska andstæðinga.

Færsla Orra á Facebook sem gefur villandi mynd af inntökualdri í leikskóla.
Orri segir að gervigreindin hafi kokkað upp tölfræðina.

Mest lesið

Discover more from Bærinn okkar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading