Á fundi bæjarráðs Hafnarfjarðar þann 30. mars síðastliðinn fullyrtu fulltrúar meirihlutans að hann hafi ávallt verið hlynntur því að börn fái ókeypis í strætó. Bæjarstjóri endurtók þessa fullyrðingu í Facebook-færslu þar sem hann gagnrýndi málflutning Samfylkingarinnar í málinu. Yfirferð á tillögum Samfylkingarinnar um málið í bæjarstjórn undanfarin ár sýnir þó að meirihlutinn hefur hafnað tillögum um ókeypis í strætó á hverju einasta ári sem hann hefur verið við völd.

Á fundinum var tillaga Samfylkingarinnar um að börn yngri en 18 ára fái ókeypis í strætó enn og aftur til umræðu. Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar lagði fram sína eigin tillögu um að börn fái ókeypis í strætó, en ekki fyrr en „greiðslukerfi strætó hefur verið þróað með þeim hætti að Hafnarfjarðarbær verði skuldfærður á grundvelli raunnotkunar ungmenna.“ Fulltrúar meirihlutans höfnuðu breytingartillögu Samfylkingarinnar við tillöguna um að nýtt fyrirkomulag taki gildi eigi síðar en 1. júní næstkomandi.

Ósannindi í bókun meirihlutans?

Í bókun meirihlutans á bæjarráðsfundinum segir að hann hafi „ávallt verið hlynntur því að frítt skuli verða í strætó fyrir börn og ungmenni og leitað leiða til að gera það á skynsaman og ábyrgan hátt.“ Þessi fullyrðing vekur athygli í ljósi þess að bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar hafa, við afgreiðslu hverrar einustu fjárhagsáætlunar á kjörtímabilinu, lagt þetta til. Meirihlutinn hefur fellt tillögurnar í hvert einasta skipti.

Í fundargerðum bæjarstjórnar, sem hægt er að nálgast á vef Hafnarfjarðarbæjar, má sjá afdrif þeirra tillagna sem lagðar hafa verið fram um málið á yfirstandandi kjörtímabili. Þar sést greinilega að fullyrðing meirihlutans um að hafa „ávallt verið hlynntur því að frítt skuli verða í strætó fyrir börn og ungmenni“ á tæplega við rök að styðjast.

Fjórar fjárhagsáætlanir á kjörtímabilinu

Fyrsta fjárhagsáætlun núverandi meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknar var afgreidd í bæjarstjórn 7. desember 2022. Þá lögðu bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar fram tillögu um ókeypis í strætó fyrir börn 15 ára og yngri. Tillagan var felld með sex atkvæðum meirihlutans í bæjarstjórn:

Önnur fjárhagsáætlun meirihlutans var svo afgreidd í bæjarstjórn 4. desember 2023. Þá lögðu bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar aftur fram tillögu um ókeypis í strætó fyrir börn 15 ára og yngri. Aftur var tillagan felld með öllum sex atkvæðum meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknar:

Fjárhagsáætlun fyrir árið 2025 var afgreidd í bæjarstjórn 12. desember 2024. Enn og aftur lögðu bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar fram tillögu um ókeypis í strætó fyrir börn, í þetta skipti fyrir 16 ára og yngri. Ekki kemur á óvart að aftur felldu bæjarfulltrúar meirihlutans tillöguna:

Síðasta fjárhagsáætlun meirihlutans á yfirstandandi kjörtímabili var svo afgreidd í bæjarstjórn þann 3. desember á síðasta ári. Þá lögðu bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar fram tillögu um ókeypis í strætó fyrir börn, í fjórða skipti á kjörtímabilinu. Í þetta sinn náði tillagan utan um öll börn 18 ára og yngri. Í fjórða sinn felldi meirihluti Sjálfstæðiflokks og Framsóknar þessa tillögu Samfylkingarinnar:

Bæjarstjóri segist hafa „talað skýrt“ í málinu

Valdimar Víðisson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, birti Facebook-færslu þann 30. mars þar sem hann gagnrýndi málflutning Samfylkingarinnar í málinu og sagði það „einfaldlega rangt“ að meirihlutinn vilji ekki gjaldfrjálsan strætó fyrir ungmenni. „Við höfum talað skýrt í þessu máli, bæði í ræðu og bókunum, að börn og ungmenni eigi að hafa aðgang að gjaldfrjálsum strætóferðum,“ sagði bæjarstjórinn.

Yfirferð Bæjarins okkar á fundargerðum bæjarstjórnar á yfirstandandi kjörtímabili sýnir svo ekki verðum um villst að meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar hefur ekki talað skýrt um að börn og ungmenni eigi að hafa aðgang að gjaldfrjálsum skólaferðum. Þvert á móti hefur meirihlutinn fellt allar tillögur þess efnis sem lagðar hafa verið fram á kjörtímabilinu.

Valdimar lauk færslu sinni á orðunum „pólitísk umræða verður að byggja á staðreyndum.“ Þær staðreyndir sem hér eru lagðar fram benda til þess að hér hafi bæjarstjórinn ekki sagt allan sannleikann í málinu.

Mest lesið

Discover more from Bærinn okkar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading