Í vor lögðu bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar fram tillögu um að fela bæjarstjóra að hefja viðræður við Betri samgöngur ohf. og Vegagerðina um aðgeðrir til að bæta umferðaröryggi gangandi og hjólandi vegfarenda á Reykjavíkurvegi. Tillagan var samþykkt. Hildur Rós Guðbjargardóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, bendir á að vegurinn sé varasamur ungmennum í norður- og vesturbæ sem sækja tómstundir yfir veginn. 

Getum ekki beðið til 2040 

Tillagan var fyrst lögð fram í bæjarstjórn síðasta haust. Þá bentu fulltrúar meirihlutans á að á Reykjavíkurvegi væru nú þegar þrenn gönguljós. Þá væri von á skýrslu frá Betri samgöngum ohf. um legu borgarlínu um veginn. Hildur Rós Guðbjargardóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, bendir á að samkvæmt áætlunum eigi borgarlínan ekki að tengjast Hafnarfirði fyrr en árið 2040. „Við getum ekki beðið í á annan áratug eftir því að öryggi barna og annarra óvarinna vegfarenda yfir Reykjavíkurveg verði bætt,“ segir Hildur Rós. 

Hún bendir á að vegurinn sé varasamur ungmennum í norður- og vesturbæ, sem þurfa að sækja íþróttaæfingar, aðrar tómstundir eða þjónustu á hraunum eða austan Reykjavíkurvegar. „Þá mun á næstu árum byggjast upp íbúðahverfi í hraununum þar sem stefnt er að blandaðri byggð. Umferð mun því aukast verulega á svæðinu og börn á grunnskólaaldri koma til með að þurfa að þvera veginn í meira mæli en nú til þess að sækja skóla, íþróttir og tómstundir,“ bendir Hildur Rós á. 

Ánægjulegt að samstaða náðist um málið 

Eftir umræðu um málið í umhverfis- og framkvæmdaráði, þar sem Hildur Rós er fulltrúi, lögðu bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar aftur fram tillögu um málið á bæjarstjórnarfundi 25. febrúar. Þá náðist samstaða um að fela bæjarstjóra að hefja þessar viðræður. „Við fögnum því að sjálfsögðu að meirihlutinn hafi komið til liðs við okkur í þessu mikilvæga máli sem snertir öryggi barnanna okkar,“ segir Hildur Rós.

Mest lesið

Discover more from Bærinn okkar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading