Í ár eru 40 ár liðin frá því að frambjóðendur Alþýðuflokksins í Hafnarfirði fóru í fyrstu rósagönguna fyrir sveitarstjórnarkosningar. Þessa dagana ganga frambjóðendur Samfylkingarinnar með rósir í hvert hús í bænum. Hluti hópsins sem tók þátt í fyrstu rósagöngunni árið 1986 hittist við kosningamiðstöð Samfylkingarinnar til að marka tímamótin.

Frá vinstri: Erlingur Kristensson, Ingvar Viktorsson, Anna Kristín Jóhannesdóttir, Jóna Ósk Guðjónsdóttir, Valgerður María Guðmundsdóttir, Guðfinna Vigfúsdóttir, Elín Soffía Harðardóttir, Gunnlaugur Stefánsson, Gylfi Ingvarsson, Tryggvi Harðarson og Guðmundur Árni Stefánsson.

Það var Hörður Zóphaníasson sem átti frumkvæðið að því að hvíla hefðbundinn kosningaáróður og dreifa rósum síðustu dagana fyrir sveitarstjórnarkosningar í Hafnarfirði, en rósin er alþjóðlegt merki jafnaðarstefnunnar. Í Alþýðublaði Hafnarfjarðar þann 4. júní 1986 segir að þessari nýbreytni hafi verið afbragðsvel tekið, en Alþýðuflokkurinn vann stórsigur í bæjarstjórnarkosningunum það ár og fékk sex bæjarfulltrúa kjörna.

Bæjarfulltrúar og varabæjarfulltrúar Alþýðuflokksins í Hafnarfirði kjörtímabilið 1986-1990. Frá vinstri: Ingvar Viktorsson, Brynhildur Skarphéðinsdóttir, Tryggvi Harðarson, Þórunn Jóhannsdóttir, Guðmundur Árni Stefánsson, Jóna Ósk Guðjónsdóttir, Eyjólfur Sæmundsson, Sigrún Jonný Sigurðardóttir og Valgerður Guðmundsdóttir. Á myndina vantar Erling Kristensson.

4500 heimili heimsótt

Frambjóðendur og stuðningsfólk Samfylkingarinnar í Hafnarfirði hafa afhent 4.500 rósir á síðustu dögum kosningabaráttunnar. Guðmundur Árni Stefánsson, oddviti Samfylkingarinnar, segir þetta vera skemmtilegasta hluta baráttunnar. „Þetta er mikilvæg snerting við kjósendur og okkur er alltaf tekið vel, enda veit fólk fyrir hvað rósin stendur. Hafnfirðingar treysta okkur jafnaðarmönnum og eru sammála um að það er þörf á breytingum í Hafnarfirði,“ segir Guðmundur Árni.

Mest lesið

Discover more from Bærinn okkar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading