Nýstofnað félag Ágústs Bjarna Garðarssonar, fyrrverandi oddvita Framsóknarflokksins í Hafnarfirði, fékk greiðslur fyrir ráðgjafastörf eftir að flokksbróðir hans, Valdimar Víðisson, tók við sem bæjarstjóri. Heimildin sagði fyrst frá.
Það voru fulltrúar Samfylkingarinnar í bæjarráði Hafnarfjarðar sem óskuðu eftir upplýsingum um verktakagreiðslur sem Hafnarfjarðarbær innti af hendi á fyrstu 9 mánuðum ársins 2025. Svörin voru lögð fram á fundi bæjarráðs þann 11. desember í fyrra.
Fyrsta greiðslan eftir að Valdimar tók við sem bæjarstjóri
Í gögnunum koma fram upplýsingar um ráðgjafagreiðslur til félagsins Vissa ráðgjöf ehf sem Ágúst Bjarni stofnaði í lok árs 2024. Hann var bæjarfulltrúi í Hafnarfirði fyrir Framsóknarflokkinn frá 2018 til 2022 og formaður bæjarráðs á þeim tíma. Hann var kjörinn á þing fyrir Framsóknarflokkinn árið 2021 en sat samhliða því í bæjarstjórn um nokkurt skeið. Hann náði ekki endurkjöri sem annar maður á lista flokksins í Suðvesturkjördæmi í Alþingiskosningum í nóvember 2024.
Innan við mánuði eftir að ljóst varð að Ágúst Bjarni myndi falla af þingi stofnaði hann félagið en engar tekjur voru af rekstri þess á árinu 2024. Samkvæmt opnu bókhaldi Hafnarfjarðar var fyrsta greiðsla Hafnarfjarðarbæjar til fyrirtækisins gerð í maí 2025 en flokksbróðir Ágústs Bjarna, Valdimar, tók við sem bæjarstjóri 1. janúar sama ár.
Hvorki verkfræðingur né arkitekt
Fyrsti reikningurinn hljóðaði upp á 3.175.000 krónur og er skráður sem „verkfræði og arkitektaþjónusta“ fyrir „ráðgjöf vegna bílastæðamála, atvinnusvæða, undirbúnings Vatnshlíðar o.fl.“. Annar reikningur vegna „rektstrar- og ráðgjafaþjónustu“ án nánari skýringa hljóðaði upp á 1.387.700 krónur en félagið fékk þannig 4.562.700 krónur í greiðslur á fyrstu níu mánuðum bæjarstjóratíðar Valdimars.
Ágúst Bjarni er hvorki verkfræðingur né arkitekt en með BA-gráðu í stjórnmálafræði og MPM-gráðu í verkefnastjórnun. Þá er fyrirtækið skráð sem almannatengslafyrirtæki á Facebook-síðu þess.
Hafnarfjarðarbær upplýsti í svari við fyrirspurn Heimildarinnar að greiðslurnar hefðu alls numið 5,6 milljónum króna eða tæpum 7 milljónum að meðtöldum virðisaukaskatti. Tveir samningar við Ágúst Bjarna voru gerðir, sá fyrri 19. mars 2025 og sá síðari 12. september. Voru þeir gerðir við Ágúst Bjarna persónulega, ekki Vissu ráðgjöf, og undirritaðir af Valdimari.









