Nýtt deiliskipulag Flensborgarhafnar gerir ráð fyrir 3-4 hæða fjölbýlishúsi þar sem nú er fjölfarið hringtorg fyrir framan verslun Krónunnar. Fulltrúar Samfylkingarinnar í skipulags- og byggingaráði taka undir athugasemdir Vegagerðarinnar sem hvetur Hafnarfjarðarbæ til að fresta skipulagsvinnunni þar til útfærsla umferðarmála á svæðinu liggur fyrir.

Útfærsla samgangna á svæðinu ólokið

Deiliskipulagstillagan var samþykkt af fulltrúum meirihlutans í skipulags- og byggingaráði þann 30. apríl síðastliðinn og vísað til bæjarstjórnar til staðfestingar. Meðal gagna málsins var athugasemd frá Vegagerðinni þar sem kemur fram að útfærslu samgangna á svæðinu sé ólokið og þar með liggi ekki fyrir endanleg rýmisþörf samgöngumannvirkja. Hvetur Vegagerðin Hafnarfjarðarbæ til þess að bíða með skipulagsbreytingar á svæðinu þar til þessari vinnu er lokið.

Fulltrúar Samfylkingarinnar tóku undir athugasemd Vegagerðarinnar og bentu á að hún sé í samræmi við tillögur flokksins í skipulags- og byggingaráði og í bæjarstjórn, um að málinu sé frestað þar til lausn sé fundin á fyrirséðum umferðarvanda á svæðinu. Vísa fulltrúar Samfylkingarinnar í samgöngugreiningu Eflu þar sem kemur fram að samgöngukerfið á svæðinu sé komið að þolmörkum.

Gríðarleg uppbygging fyrirhuguð

Bærinn okkar hefur áður fjallað um áform meirihluta Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks um gríðarlega uppbyggingu við Suðurhöfn, þar sem þegar skapast mikil umferð á háannatímum. Núverandi áform um uppbyggingu á svæðinu gera ráð fyrir um 1.300 nýjum íbúðum ásamt annarri atvinnustarfsemi eins og hóteli, skrifstofum og nýjum Tækniskóla með allt að 5.000 nemendum og 500 starfsmönnum.

Umferðartalningar sýna að á síðustu tveimur árum hafi umferð um svæðið aukist um 15-20 prósent. Því má gera ráð fyrir að umferðin haldi áfram að aukast um 10 prósent á ári óháð því hvort verði af fyrirhugaðri uppbyggingu á svæðinu eða ekki. Af þessum sökum hafa fulltrúar Samfylkingarinnar í skipulags- og byggingaráði ítrekað lagt til að skipulagsbreytingum á svæðinu verði frestað þar til búið sé að finna lausn á umferðarvandanum.

Á þessum uppdrætti má sjá hvar ný íbúðabyggð er fyrirhuguð þar sem nú er fjölfarið hringtorg við Krónuna.

Mest lesið

Discover more from Bærinn okkar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading