Ný umferðargreining, sem gerð var fyrir Hafnarfjarðarbæ í tengslum við fyrirhugaða uppbyggingu á hafnarsvæðinu, sýnir að gatnakerfið á svæðinu er þegar komið að þolmörkum. Verði ekki brugðist við stefni í algjört ófremdarástand í umferðarmálum, miðað við áform um uppbyggingu íbúða og Tækniskólans á svæðinu.

Núverandi áform um uppbyggingu á svæðinu gera ráð fyrir um 1.300 nýjum íbúðum ásamt annarri atvinnustarfsemi eins og hóteli, skrifstofum og nýjum Tækniskóla með allt að 5.000 nemendum og 500 starfsmönnum. Umferðargreiningin, sem unnin var af verkfræðistofunni Eflu, bendir til að þessi uppbygging muni fjölga bílferðum á svæðinu um 17.700 á sólarhring.

Umferðartalningar sýna að á síðustu tveimur árum hafi umferð um svæðið aukist um 15-20 prósent. Því má gera ráð fyrir að umferðin haldi áfram að aukast um 10 prósent á ári óháð því hvort verði af fyrirhugaðri uppbyggingu á svæðinu eða ekki.

Þörf á tveimur borgarlínuleiðum um svæðið

Í greiningunni segir að til að halda umferðarástandi á svæðinu innan ástættanlegra marka til framtíðar þurfi að tryggja að hið minnsta tvær borgarlínuleiðir, með ferðir á sjö mínútna fresti, þjóni svæðinu.

Miðað við hraða uppbyggingar borgarlínu hingað til verður að teljast ólíklegt að búið verði að tengja Suðurhöfn við borgarlínukerfið áður en af fyrirhugaðri uppbyggingu verður. Samkvæmt núgildandi áætlunum á tenging borgarlínu við miðbæ Hafnarfjarðar ekki að vera tilbúin fyrr en árið 2040.

Nú hefur oddviti Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði lagt til að áform um borgarlínu verði lögð á ís og þess í stað verði ráðist í uppbyggingu lestarkerfis. Verði þetta að veruleika er fyrirséð að íbúar höfuðborgarsvæðisins munu þurfa að bíða enn lengur eftir skilvirkara almenningssamgöngukerfi í bænum og vandinn á hafnarsvæðinu halda áfram að aukast.

Til viðbótar við borgarlínu leggja höfundar umferðargreiningarinnar til ýmsar leiðir til að auka afkastagetu gatnakerfisins á svæðinu. Má þar nefna tvöfalt hringtorg eða ljósastýringu á gatnamótum Strandgötu og Fornubúða og fjölgun akgreina á Strandgötu milli Fornubúða og Hvammabrautar og jafnvel alveg upp að gatnamótum við Reykjanesbraut.

Vildu fresta afgreiðslu skipulags í ljósi umferðarvanda

Tillögur um deiliskipulagsbreytingar vegna uppbygginar íbúða og Tækniskóla á hafnarsvæðinu voru til afgreiðslu á fundi bæjarstjórnar þann 11. febrúar síðastliðinn. Á þeim fundi lögðu bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar til að afgreiðslu skipulagsins yrði frestað þar til fyrir liggi hvernig eigi að leysa fyrirséðan umferðarvanda svæðisins.

Í bókun Samfylkingarinnar segir að mikilvægt sé að „bregðast við þeim ábendingum sem koma fram í samgöngugreiningu Eflu frá því í janúar 2026 þar sem kemur m.a. fram að umferðarkerfið á svæðinu er komið að þolmörkum.“ Það sé nauðsynlegt að taka á þeim áskorunum með heildstæðum hætti, „og það er hægt ef pólitískur vilji væri til staðar hjá meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks.“

„Af þeim sökum lagði Samfylkingin til að afgreiðslunni yrði frestað þar til raunhæfar lausnir varðandi samgöngur og umferðarmál á svæðinu hafa verið tryggðar,“ segir í bókuninni.

Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar hafnaði tillögu Samfylkingarinnar um að fresta afgreiðslu málsins.

Mest lesið

Discover more from Bærinn okkar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading