Borgarráð Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum í dag tillögur varðandi útfærslu á ókeypis strætóferðum fyrir börn á grunnskólaaldri. Ókeypis verður frá og með 4. maí. Meirihlutinn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefur ítrekað hafnað tillögum Samfylkingarinnar í þessa veru og borið fyrir sig að fyrst þurfi að leysa tæknileg útfærsluatriði.

Eins og Bærinn okkar hefur sagt frá hefur meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar ítrekað hafnað tillögum Samfylkingarinnar um að ókeypis verði í strætó fyrir börn upp að 18 ára aldri. Slíkar tillögur hefur Samfylkingin lagt fram við afgreiðslu hverrar einustu fjárhagsáætlunar á yfirstandandi kjörtímabili.

Of flókið útfærsluatriði fyrir meirihlutann

Málið komst aftur í hámæli í bæjarstjórn Hafnarfjarðar í kjölfar samþykktar borgarráðs Reykjavíkur þann 3. febrúar síðastliðinn, um að ókeypis verði í strætó fyrir reykvísk grunnskólabörn frá byrjun maímánaðar. Þá lögðu bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar til að ókeypis yrði í strætó fyrir hafnfirsk börn frá og með 1. júní næstkomandi.

Þá sögðust fulltrúar meirihlutans vera efnislega sammála tillögu Samfylkingarinnar. Málið krefðist hins vegar vandaðrar skoðunar og yfirlegu, enda yrði fyrst að leysa úr tæknilegum útfærsluatriðum í samstarfi við Strætó bs. Tillögu Samfylkingarinnar var því hafnað. Fór svo að lokum að meirihlutinn samþykkti eigin tillögu um að ókeypis yrði í strætó fyrir hafnfirsk börn, en ekki fyrr en búið væri að finna lausn á útfærslunni.

Reykjavík fann lausnina

Tillaga borgarráðs Reykjavíkur varðandi útfærsluna er einföld: Grunnskólabörnum verður einfaldlega boðið upp á ókeypis tímabilskort í Klapp-appi í maí og júní, en svo er stefnt að því að varanleg útfærsla taki við í júlí. Grunnskólabörn í Reykjavík munu því geta nálgast tímabilskortið í sínum grunnskóla strax eftir helgi og byrja að ferðast ókeypis með strætó.

Mest lesið

Discover more from Bærinn okkar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading