Framboðsfrestur til sveitarstjórnarkosninga þann 16. maí næstkomandi rann út á föstudag. Í Hafnarfirði skiluðu sex flokkar framboðslistum. Nú verður farið yfir það hvort framboðin uppfylli skilyrði, meðal annars með tilliti til fjölda meðmæla, og verða endanlegir framboðslistar kynntir eftir helgi.

Þessir flokkar skiluðu framboðslistum í Hafnarfirði:

  • Framsókn
    Oddviti: Valdimar Víðisson, bæjarstjóri.
  • Miðflokkurinn
    Oddviti: Einar Geir Þorsteinsson, lögmaður.
  • Samfylkingin
    Oddviti: Guðmundur Árni Stefánsson, bæjarfulltrúi og fyrrum bæjarstjóri.
  • Sjálfstæðisflokkurinn
    Oddviti: Orri Björnsson, bæjarfulltrúi.
  • Viðreisn
    Oddviti: Karólína Helga Símonardóttir, framkvæmdastjóri og varaþingmaður.
  • Vinstrið
    Oddviti: Ester Bíbí Ásgeirsdóttir, verkefnastjóri.

Í bæjarstjórn Hafnarfjarðar sitja fulltrúar frá fjórum flokkum. Sjálfstæðisflokkur og Framsókn mynda meirihluta og Samfylkingin og Viðreisn eru í minnihluta. Miðflokkurinn og Vinstrið eiga ekki fulltrúa í bæjarstjórn.

Mest lesið

Discover more from Bærinn okkar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading