Útför Björgvins Halldórssonar fer fram frá Hallgrímskirkju í dag klukkan 15. Í kjölfarið verður erfidrykkja í íþróttahúsi Hauka að Ásvöllum. Flaggað er í hálfa stöng víða um Hafnarfjörð í dag, meðal annars á Hamrinum.
Björgvin Halldórsson lést á heimili sínu þann 9. apríl síðastliðinn. Hann var 74 ára gamall, en hefði orðið 75 ára 16. apríl. Björgvin skipaði stóran sess í hjörtum Hafnfirðinga og var fyrstur til að vera heiðraður með sérstakri stjörnu á gangstéttinni fyrir utan Bæjarbíó.
Flaggað er í hálfa stöng víða um bæinn í dag, en meðfylgjandi mynd tók Sigurjón Sigurjónsson, tækjamaður hjá þjónustumiðstöð Hafnarfjarðar, uppi á Hamrinum. Útförin hefst sem fyrr segir í Hallgrímskirkju klukkan 15:00 og í kjölfarið verður haldin erfidrykkja í íþróttahúsi Hauka að Ásvöllum.










