Við upphaf kjörtímabils núverandi meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknar í bæjarstjórn Hafnarfjarðar voru 278 félagslegar íbúðir á vegum bæjarins. Félagslegar íbúðir á hverja 1.000 íbúa bæjarins voru þá 9,4 en eru nú orðnar 8,7. Samfylkingin vill átak í fjölgun félagslegra íbúða.

Samkvæmt nýjustu tölum fjölskyldusviðs Hafnarfjarðar eru félagslegar íbúðir orðnar 291 í bænum og hefur því fjölgað um 13 á kjörtímabilinu. Á sama tíma hefur íbúum Hafnarfjarðar fjölgað um 3.935 og hlutfall félagslegra íbúða á hverja 1.000 íbúa lækkað úr 9,4 í 8,7. Til samanburðar eru 20,7 félagslegar íbúðir á hverja 1.000 íbúa í Reykjavík , 15,1 á Akureyri og 11,3 í Kópavogi.

Margra ára bið eftir íbúð

Í svari við fyrirspurn Samfylkingarinnar, sem lagt var fram á fundi fjölskylduráðs þann 25. nóvember 2025, kemur fram að meðal biðtími eftir félagslegri íbúð hjá bænum sé allt að fjögur ár fyrir tveggja herbergja íbúð. Biðin er tvö ár eftir þriggja herbergja íbúð og eftir fjögurra herbergja íbúð þarf að bíða í eitt ár.

163 einstaklingar eru á biðlista eftir félagslegu húsnæði og af þeim eru 33 skráðir heimilislausir. Því er ljóst að þörfin eftir fleiri íbúðum er aðkallandi. Á kjörtímabilinu hafa 17 íbúðir verið keyptar inn í félagslega íbúðakerfið en meirihlutinn hefur hafnað tillögum Samfylkingarinnar um að fleiri íbúðir verði keyptar.

Samfylkingin vildi átak í fjölgun félagslegra íbúða

Fulltrúar Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Hafnarfjarðar hafa á yfirstandandi kjörtímabili ítrekað vakið athygli á löngum biðlistum eftir félagslegu húsnæði. Árið 2023 lagði Samfylkingin til að ráðist yrði í átak í fjölgun félagslegra íbúða. Vildi Samfylkingin að keyptar yrðu 15 íbúðir á ári á næstu fimm árum, eða svipaðan fjölda og meirihlutinn hefur látið kaupa allt kjörtímabilið.

Tillögu Samfylkingarinnar var hafnað af meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknar. Fulltrúar Samfylkingarinnar létu bóka að höfnun meirihlutans á tillögunni væri birtingarmynd þess áhugaleysis sem meirihlutinn hefur á málaflokknum. „Margt fólk er í brýnni þörf eftir húsnæði og það er algjört forgangsmál af hálfu jafnaðarfólks í bæjarstjórn að félagslegum íbúðum verði fjölgað með markvissum hætti hjá Hafnarfjarðarbæ,“ sagði í bókuninni.

Þá lögðu bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar það til við afgreiðslu fjárhagsáætlunar ársins 2026 að framlag til fjölgunar félagslegra íbúða yrði hækkað um 200 milljónir, úr 250 í 450 milljónir. Þeirri tillögu var einnig hafnað af meirihlutanum.

Mest lesið

Discover more from Bærinn okkar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading