Samfylkingin mælist með langmest fylgi á landsvísu í nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Í Suðvesturkjördæmi mælist flokkurinn með 27 prósenta fylgi, 3,5 prósentustigum meira en Sjálfstæðisflokkurinn. Oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði segir Hafnfirðinga vita að jafnaðarmenn geri það sem þeir segjast ætla að gera.
Mikil fylgisaukning frá kosningum
Í Alþingiskosningunum árið 2024 fékk Samfylkingin 19,3 prósenta fylgi. Þá fékk Sjálfstæðisflokkurinn 23,4 prósent og Viðreisn 20,1 prósent. Nú er landslagið annað. Samfylkingin hefur bætt við sig tæpum átta prósentustigum og mælist stærstur flokka í kjördæminu með 27 prósenta fylgi. Miðflokkurinn kemur þar næstur á eftir með 23,5 prósent og Sjálfstæðisflokkurinn orðinn þriðji stærsti flokkur kjördæmisins með 23 prósent.
Í nánast öllum Alþingiskosningum frá árinu 2003 hefur Sjálfstæðisflokkurinn verið stærstur flokka í Suðvesturkjördæmi. Eina undantekningin er árið 2009, þegar Samfylkingin vann stórsigur með 32,2 prósent atkvæða.
Stórsókn Samfylkingar á landsvísu
Á landinu öllu mælist Samfylkingin með 28,5 prósenta fylgi, sem er aukning um tæp átta prósent frá síðustu Alþingiskosningum. Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur mælast báðir með um 20 prósenta fylgi og Viðreisn, sem vann mikinn sigur í Alþingiskosningunum árið 2024, mælist nú með aðeins 10,6 prósenta fylgi.
Samkvæmt niðurstöðum þjóðarpúlsins myndi Samfylkingin bæta við sig fimm þingmönnum og fá 20 fulltrúa kjörna á Alþingi. Þingflokkur Samfylkingarinnar yrði þannig langstærstur, en næst á eftir kæmi Sjálfstæðisflokkurinn með 14 þingmenn og Miðflokkurinn með 13 þingmenn.
Samfylkingin geri það sem hún segist ætla að gera

Guðmundur Árni Stefánsson, oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði, segist skynja meðbyrinn með Samfylkingunni meðal kjósenda í Hafnarfirði. „Samfylkingin í ríkisstjórn er að lækka dæluna, hún er að grípa til róttækra aðgerða á húsnæðismarkaði, hún er að leiðrétta kjör aldraðra og öryrkja og hún er að ráðast í stórsókn í uppbyggingu hjúkrunarheimila um land allt,“ segir Guðmundur Árni.
„Hafnfirðingar og landsmenn allir sjá það skýrt þessa dagana að við jafnaðarmenn gerum það sem við segjumst ætla að gera. Hafnfirðingar þekkja okkur jafnaðarmenn af verkum okkar og treysta okkur til að taka við forystu í bænum og láta verkin tala.“










