Samfylkingin mælist stærst þeirra stjórnmálaflokka sem bjóða fram í sveitarstjórnarkosningum í Hafnarfirði þann 16. maí næstkomandi. Þetta sýnir glæný skoðanakönnun sem sagt var frá í pallborðsumræðum oddvita flokkanna á Vísi í dag. Oddviti Samfylkingarinnar segir jafnaðarstefnuna eiga sterkar rætur í Hafnarfirði.

Könnunin var framkvæmd af Maskínu dagana 22. til 27. apríl. Samkvæmt henni er Samfylkingin stærst með 24,2 prósent. Næst kemur Viðreisn með 22,4 prósent, svo Sjálfstæðisflokkurinn með 22,1 prósent. Framsókn mælist með 14,9 prósenta fylgi, Miðflokkurinn 9,7 prósent og Vinstrið með 6,8 prósent.

Sjálfstæðisflokkurinn fengi aðeins tvo bæjarfulltrúa

Yrðu þetta niðurstöður kosninganna fengi Samfylkingin þrjá fulltrúa kjörna í bæjarstjórn. Viðreisn fengi sömuleiðis þrjá fulltrúa en Sjálfstæðisflokkurinn fengi aðeins tvo fulltrúa kjörna. Framsókn fengi einnig tvo fulltrúa og Miðflokkurinn einn. Vinstrið næði ekki inn fulltrúa í bæjarstjórn.

Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar er því kolfallinn með aðeins 4 fulltrúa af 11 í bæjarstjórn. Eini tveggja flokka meirihlutinn sem hægt væri að mynda samkvæmt niðurstöðum þessarar könnunar er meirihluti Samfylkingar og Viðreisnar. Fulltrúi Miðflokksins myndi ekki duga til að halda lífi í núverandi meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknar.

Hafnfirðingar viti fyrir hvað jafnaðarmenn standa

Guðmundur Árni Stefánsson, oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði.

Guðmundur Árni Stefánsson, oddviti Samfylkingarinnar, segir að Hafnfirðingar séu að kalla eftir breytingum. „Helstu tíðindin í þessari könnun eru þau að kjósendur eru orðnir þreyttir á núverandi meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknar. Hafnfirðingar þekkja okkur jafnaðarmenn. Jafnaðarmenn byggðu upp þetta bæjarfélag að miklu leyti og Hafnfirðingar vita hvað við stöndum fyrir. Samfylkingin er tilbúin til þess að verða forystuafl í bæjarstjórn Hafnarfjarðar á ný eftir næstu kosningar. “

Niðurstöður skoðanakönnunar Maskínu 22. til 27. apríl.

Mest lesið

Discover more from Bærinn okkar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading