Fulltrúi Samfylkingarinnar í menningar- og ferðamálanefnd lagði það til á dögunum að Hafnarfjarðarbær kanni möguleikann á að koma upp varanlegu skautasvelli í bænum. Fulltrúi Samfylkingarinnar í starfshópi um þróun íþróttasvæðis í Hamranesi segir mikilvægt að bregðast við ákalli eftir aðstöðu fyrir skautafólk.
Hafnarfjörður tæki forystu

Sigurður Þ. Ragnarsson, eða Siggi Stormur, er fulltrúi Samfylkingarinnar í menningar- og ferðamálanefnd. Í greinargerð með tillögu hans kemur fram að skautasvell hafi verið fastur liður í tengslum við jólaþorpið og notið mikilla vinsælla. Því telij hann fulla ástæðu til að kanna möguleikann á uppsetningu á varanlegu skautasvelli í bænum. „Með því móti tæki Hafnarfjörður vissa forystu sveitarfélaga utan Reykjavíkur en jaðarsveitarfélög verða að vera á tánum til að tryggja straum ferðamanna til bæjarins,“ segir í greinargerðinni.
Rís skautahöll í Hamranesi?
Tillögu Sigurðar var vísað til umsagnar í umhverfis- og framkvæmdaráði, þar sem fulltrúar Samfylkingarinnar lögðu til að umhverfis- og skipulagssvið tæki saman mögulega valkosti varðandi staðsetningu skautasvells í Hafnarfirði. Fór svo að tillögunni var vísað inn í starfshóp um þróun útivistar-, tómstunda- og íþróttasvæðis í Hamranesi. Á síðasta fundi starfshópsins kom fram að búið sé að óska eftir þarfagreiningu frá Skautafélagi Hafnarfjarðar.
Starfshópur um þróun útivistar-, tómstunda- og íþróttasvæðis í Hamranesi tók til starfa þann 19. mars 2025. Í honum sitja Kristín Thoroddsen, Sjálfstæðisflokki, María Jonný Sæmundsdóttir, Framsókn, Stefán Már Gunnlaugsson, Samfylkingunni, og Karólína Helga Símonardóttir, Viðreisn.
Mikilvægt að bregðast við ákalli íþróttafélaga í bænum

Fulltrúi Samfylkingarinnar í hópnum, Stefán Már Gunnlaugsson, segir í samtali við Bæinn okkar að skautafólk hafi í langan tíma kallað eftir aðstöðu til skautaiðkunar í Hafnarfirði. „Það er mikilvægt að við bregðumst við þessu ákalli og byggjum upp aðstöðu fyrir þau íþróttafélög í Hafnarfirði sem eru í þörf fyrir það,“ segir Stefán. „Útivistar-, tómstunda- og íþróttasvæði í Hamranesi er spennandi hugmynd og með uppbyggingu þar væri hægt að mæta þessu ákalli um betri aðstöðu íþróttafélaga í bænum.“










