Samfylkingin í Hafnarfirði býður bæjarbúum í sögugöngu um sögu byggðar og hafnar í Hafnarfirði þann 15. apríl næstkomandi. Leiðsögumenn verða fyrrverandi bæjarstjórarnir Ingvar Viktorsson og Lúðvík Geirsson, en sá síðarnefndi starfar nú sem hafnarstjóri Hafnarfjarðarhafnar.
Ljóst er að búast má við áhugaverðri göngu, en þeir Ingvar og Lúðvík hafa komið víða við á ýmsum sviðum stjórnmála og mannlífs í Hafnarfirði. Ingvar Viktorsson var til að mynda sjómaður og forstöðumaður Vinnuskóla Hafnarfjarðar, kennari við Flensborg og Víðistaðaskóla, ritstjóri Alþýðublaðsins í Hafnarfirði, formaður handknattleiksdeildar FH, stjórnarmaður í ÍSAL, auk þess að hafa verið bæjarfulltrúi og bæjarstjóri til fjölda ára.
Lúðvík Geirsson var bæjarfulltrúi í 16 ár og bæjarstjóri Hafnarfjarðar frá 2002 til 2010. Hann starfaði sem ritstjóri hafnfirska bæjarblaðsins Vegamóta frá 1979 til 1995 og sat á Alþingi frá 2011 til 2013. Hann hefur meðal annars skrifað bækur um sögu Knattspyrnufélagsins Hauka og sögu verslunar og kaupmennsku í Hafnarfirði. Hann hefur frá árinu 2016 starfað sem hafnarstjóri Hafnarfjarðarhafnar.
Sögugangan verður sem fyrr segir miðvikudaginn 15. apríl, hefst við Sívertsen hús klukkan 17:00 og lýkur við Strandgötu 43 klukkan 18:30.










