Guðmundur Árni Stefánsson, oddviti Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Hafnarfjarðar, gagnrýndi aðgerðaleysi meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknar í samgöngumálum í oddvitaþætti RÚV sem sýndur var í gær. Sagði hann meirihlutann „fljóta sofandi að feigðarósi“ vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar nýs Tækniskóla og 4.000 íbúa hverfis við Suðurhöfn.
Hafnarfjörður aftarlega í röðinni
Guðmundur Árni benti á að samgönguúrbætur í Hafnarfirði væru allt of aftarlega á forgangslista samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. „Við í Samfylkingunni höfum sennilega tekið þetta mál upp svona 40 sinnum hér í bæjarstjórn Hafnarfjarðar,“ sagði Guðmundur Árni og sagði engar framkvæmdir á dagskrá í Hafnarfirði fyrr en á árunum 2030-2032.
Gilti þá einu hvort um væri að ræða stofnbrautarframkvæmdir á borð við gatnamót Lækjargötu og Reykjanesbrautar eða borgarlínu, sem þurfi líka að flýta til að létta umferðarþungann. Samkvæmt samgöngusáttmálanum er borgarlína til miðbæjar Hafnarfjarðar ekki á dagskrá fyrr en árið 2040.
Vilja endurskoða samgöngusáttmála sem þeir skrifuðu sjálfir undir
Orri Björnsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins, og Valdimar Víðisson, bæjarstjóri, lýstu því báðir yfir að þeir vildu endurskoða samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins í því skyni að flýta stofnbrautarframkvæmdum í Hafnarfirði. Guðmundur Árni sagði það vera merkilega yfirlýsingu að þeir vilji „korteri fyrir kosningar“ endurskoða sáttmála sem þeir stóðu sjálfir að því að gera, bæði árið 2019 og við endurskoðun sáttmálans árið 2023.
Umferðarmál við Suðurhöfn á algjörum byrjunarreit
Guðmundur Árni gagnrýndi að ekki hefði verið hugsað betur út í umferðarmál í tengslum við fyrirhugaða uppbyggingu nýs Tækniskóla fyrir 3.000 nemendur og 1.500 nýrra íbúða við Suðurhöfn. Þetta fólk muni þurfa að komast milli heimilis og vinnu. Sagði hann þetta vera dæmi um það hvernig meirihlutaflokkarnir, „sem farið hafa með stjórn mála allt of lengi, fljóta sofandi að feigðarósi og koma svo korteri fyrir kosningar og segjast vilja endurskoða málin.“
Bærinn okkar hefur áður fjallað um umferðarmálin við Suðurhöfn, en þar hafa umferðargreiningar sýnt að það stefnir í ófremdrarástand vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á svæðinu.
Þá höfum við einnig fjallað um hringtorgið alræmda við N1 á Reykjanesbraut, en þar hefur meirihlutinn haft mögulega ljósastýringu til skoðunar í þrjú ár.
Þegar búið að hanna valkostina á Reykjanesbraut
Aðspurður sagði Guðmundur Árni að Samfylkingin vilji flýta hraðstrætó, eða borgarlínu, að Firði og áfram niður að Suðurhöfn. Þá vilji flokkurinn birta þá valkosti sem þegar er búið að hanna í tengslum við Reykjanesbraut. „Þar eru annars vegar jarðgöng og hins vegar mislæg gatnamót. Þessi hönnun liggur fyrir. Setjum málið á dagskrá og tökum ákvarðanir,“ sagði Guðmundur Árni að lokum.









