Hægt hefur gengið að leysa umferðarvandann á hringtorginu á gatnamótum Lækjargötu og Reykjanesbrautar við N1 á yfirstandandi kjörtímabili. Umferð um hringtorgið heldur áfram að aukast með tilheyrandi umferðartöfum fyrir Hafnfirðinga. Þrjú ár eru liðin síðan umhverfis- og framkvæmdaráð fól umhverfis- og skipulagssviði Hafnarfjarðar að skoða möguleika á ljósastýringu sem tímabundinni lausn.

Ekkert gerst í átta ár

Í samstarfssáttmála núverandi meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknar segir að framtíðarlausnir á umferðarálagi við Reykjanesbraut verði „settar í forgang“ á kjörtímabilinu. Lítið hefur þó áunnist í þessum efnum síðan meirihlutinn endurnýjaði samstarf sitt undir þessum formerkjum árið 2022.

Þann 28. apríl 2023 samþykkti umhverfis- og framkvæmdaráð tillögu um að fela umhverfis- og skipulagssviði að „skoða möguleika á ljósastýringu“ á hringtorginu á mótum Lækjargötu og Reykjanesbrautar. Það var raunar ekki í fyrsta sinn sem þeirri leið hefur verið velt upp því þegar árið 2018 hafði bæjarstjórn áhyggjur af umferðinni um hringtorgið en taldi þá að ljósastýring væri ekki vænleg lausn.

Vilja setja a upp ljósastýringu korter í kosningar

Nú, rétt fyrir kosningar og þremur árum eftir að ákveðið var að skoða málið, hefur meirihlutinn loks ákveðið að ljósastýring sé rétta leiðin. Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkti þann 7. janúar síðastliðinn tillögu um að hafnar verði viðræður við Vegagerðina um þessa leið „án tafar“.

Umferðargreining sem Vegagerðin vann fyrir Hafnarfjarðarbæ sýnir að ljósastýring á hringtorginu hefði bæði kosti og galla í för með sér. Hún myndi stytta raðir í Lækjargötu og Hlíðarbergi en á móti myndi hún lengja raðirnar í báðar áttir á Reykjanesbraut.

Beðið eftir framtíðarlausn

Í samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins er gert ráð fyrir að framkvæmdir vegna varanlegrar lausnar á þessum kafla hefjist á árunum 2028-2032. Einkum eru tvær lausnir í stöðunni: annað hvort mislæg gatnamót eða stokkur/jarðgöng. Það bíður væntanlega næsta meirihluta í bæjarstjórn að taka afstöðu til þess, í samráði við Vegagerðina, hvor leiðin verður fyrir valinu.

Umferðarvandi Hafnfirðinga er víðar en við N1-hringtorgið. Eins og Bærinn okkar hefur fjallað um stefnir í ófremdarástand vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar íbúða og nýs Tækniskóla á hafnarsvæðinu, þar sem gatnakerfið er þegar komið að þolmörkum.

Mest lesið

Discover more from Bærinn okkar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading