Hafnfirðingar fá ástæðu til að drusta rykið af grillinu í kvöld því spáð er heiðskíru og hátt í 10 stiga hita. Veðurfræðingurinn Sigurður Þ. Ragnarsson, eða Siggi Stormur eins og hafnfirðingar kalla hann, segir að vorið sé að stimpla sig inn.

„Þetta verður sannkölluð vorblíða þegar líður á daginn með hægviðri, björtu veðri og hlýindum,“ segir Siggi í samtali við Bæinn okkar.

Á vef Veðurstofu Íslands má sjá að í Hafnarfirði verður heiðskírt, 9 stiga hiti og hæg suðvestanátt klukkan 18:00 í kvöld. Ágætisveður verður svo fram yfir helgi.

Menningarhátíð í vorblíðunni

Það mun því viðra vel á Sigga og félaga hans í menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar á Menningarhátíð sem verður sett í dag kl 17:00 í Hafnarborg. Þar fer fram útnefning á bæjarlistamanni Hafnarfjarðar 2026.

Á sama tíma stendur Samfylkingin í Hafnarfirði fyrir sögugöngu um sögu byggðar og hafnar. Leiðsögn verður í höndum bæjarstjóranna fyrrverandi, Lúðvíks Geirssonar og Ingvars Viktorssonar, og hefst gangan fyrir framan Sívertsen húsið klukkan 17:00.

Stormurinn, sem skipar 15. sæti á framboðslista Samfylkingarinnar í Hafnarfirði fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar, lofar því að vetrarlægðunum sé lokið í bili. „Vorið er að stimpla sig inn!“

Mest lesið

Discover more from Bærinn okkar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading