Óskar Steinn Ómarsson skrifar:

Fyrir mér er velferð ungmenna eitt mikilvægasta kosningamálið í komandi kosningum. Í þeim málaflokki er helsta afrek núverandi meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknar að hafa lagt niður ungmennahúsið Hamarinn þrátt fyrir hávær mótmæli ungmenna og fagfólks í tómstundageiranum. Ein stærsta ástæða þess að ég fór í framboð fyrir Samfylkinguna er sú sannfæring mín að ungmenni í Hafnarfirði eiga betra skilið.

Framsækið starf lagt í rúst

Ungmennahúsið Hamarinn var vel sótt af ungmennum á aldrinum 16 til 25 ára og hafði náð frábærum árangri í að ná til jaðarsettra ungmenna. Um þetta vitnar opið bréf sem SAMFÉS, Landssamtök félagsmiðstöðva og ungmennahúsa, skrifaði bæjarstjórn Hafnarfjarðar til að mótmæla fyrirhugaðri lokun Hamarsins.

Í bréfinu sagði m.a.: „Þegar Samfés hefur fengið heimsóknir frá aðilum erlendis frá sem koma hingað til lands að sækja sér þekkingu á sviði tómstunda- og félagsmála hafa þau iðulega óskað sérstaklega eftir að fá kynningu á starfsemi þessa ungmennahúss, en þau hafa getið sér gott orðspor hér heima við og á erlendri grundu fyrir framsækið og metnaðarfullt starf í þágu ungmenna.“

Meirihlutaflokkarnir létu þessi orð sem vind um eyru þjóta og stóðu við fyrirætlanir sínar um að skella ungmennahúsinu í lás sumarið 2024. Ekki höfðu hávær mótmæli Nemendafélags Flensborgar eða Ungmennaráðs Hafnarfjarðar heldur áhrif á einbeittan vilja meirihlutans til að eyðileggja framsækið og metnaðarfullt starf Hamarsins og segja upp öllum sem þar störfuðu. 

Engin þjónusta í 15 mánuði

Undirritaður starfaði í Hamrinum í 5 ár og hefur því góða innsýn í það starf sem þar fór fram. Ég þekki líka því miður til ungmenna sem upplifðu vanlíðan og aukna félagslega einangrun í kjölfar þess að ungmennahúsið þeirra var lagt niður. Ekkert úrræði greip þessi ungmenni og það tók meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknar 15 mánuði að opna nýtt ungmennahús í Hafnarfirði í kjölfar lokunar Hamarsins.

Það er með nokkrum ólíkindum hvað meirihlutinn átti auðvelt með að leggja niður þessa mikilvægu þjónustu fyrir ungmenni í bænum án áætlunar um hvað tæki við. Slík vinnubrögð eru óboðleg í bæjarfélagi sem vill taka vel utan um börn og ungmenni.

Sterkari saman

Hafnfirsk ungmenni eiga betra skilið. Við í Samfylkingunni viljum standa vörð um það sem vel er gert og taka ákvarðanir um málefni ungmenna á faglegum forsendum. Tryggja þarf að rof verði ekki á mikilvægri þjónustu við jaðarsett ungmenni í bænum. Þannig verðum við sterkari – saman. 

Höfundur skipar 7. sæti á framboðslista Samfylkingarinnar í Hafnarfirði.

Mest lesið

Discover more from Bærinn okkar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading