Árni Rúnar Þorvaldssson skrifar:

Það er þörf á breytingum í Hafnarfirði og Samfylkingin er tilbúin til verka á grunni vandaðrar og ítarlegrar stefnuskrár sem nú hefur verið birt á vef okkar. Þar nálgumst við viðfangsefnin af skilningi og raunsæi. Stefnan byggir á vinnu og málflutningi jafnaðarfólks í bæjarstjórn á kjörtímabilinu og fjölbreyttu samráði við íbúa, atvinnulíf og félagasamtök. 

Forgangsröðun í þágu íbúa 

Á næstu fjórum árum ætlum við að setja málefni barna og ungmenna í fyrsta sæti með því að lækka kostnað barnafólks og einfalda daglegt líf þess. Jafnframt munum við leggja sérstaka áherslu á velferð og líðan barna og ungmenna í bænum. 

Við ætlum að hlúa að fólkinu sem byggði bæinn. Í þeim efnum er það grundvallarmarkmið hjá okkur að styðja við virkni eldra fólks með fjölbreyttum hætti og koma þannig í veg fyrir félagslega einangrun.

Lykilverkefni í samgöngumálum verða sett í forgangi hjá okkur á næsta kjörtímabili. Hafnfirðingar vita það manna best að í þeim málum er verk að vinna. 

Við meinum  það sem við segjum og þess vegna tímasetjum við lykilmál í stefnuskrá okkar: 

  • Frítt verður í strætó fyrir börn og ungmenni að 18 ára aldri frá og með 1. júlí nk. 
  • Frístundastyrkurinn verður hækkaður í 75. þús. kr. frá og með 1. september nk. 
  • Uppbygging lífsgæðaíbúða fyrir eldra fólk á Sólvangssvæðinu verður hafin í október á þessu ári. 

Eftirfarandi mál munum við svo setja af stað strax að loknum kosningum: 

  • Styðja við velferð og geðheilbrigði barna og ungmenna með því að auka sálfræðiþjónustu og stoðþjónustu í skólum og draga markvert úr biðlistum eftir þjónustu. 
  • Tryggja löngu tímabæra fjölgun hjúkrunarrýma á þeim svæðum þar sem ný hjúkrunarheimili hafa verið í undirbúningi, í Hamranesi, Hrafnistu og Vatnshlíð. 
  • Hefja þegar í stað viðræður við yfirvöld um að flýta bráðnauðsynlegum samgönguúrbótum á Reykjanesbraut frá N1 hringtorgi að Kaplakrika, við Suðurhöfn og Flóttamannavegi. 
  • Knýja á um uppfærslu Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins þannig að Borgarlína nái til Suðurhafnar í sérrými í ljósi komu nýs Tækniskóla á svæðið. 
  • Ráðast í kraftmiklar aðgerðir í húsnæðismálum með því að stórauka samstarf við óhagnaðardrifin leigufélög og bjóða upp á fjölbreytt og hagkvæmt húsnæði. 
  • Hefja þegar í stað undirbúning stækkunar Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og setja af stað vinnu vegna nýs menningarhúss. 

Við erum tilbúin og ætlum að láta verkin tala í þágu bæjarbúa!

XS-Sterkari Saman!

Höfundur er bæjarfulltrúi og skipar 3. sætið á lista Samfylkingarinnar í Hafnarfirði.

Mest lesið

Discover more from Bærinn okkar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading