Verkalýðsfélagið Hlíf og Starfsmannafélag Hafnarfjarðar standa í dag fyrir opnum fundi með oddvitum þeirra framboða sem bjóða fram í Hafnarfirði. Á fundinum býðst gestum færi á að bera upp spurningar til oddvitanna. Fundurinn fer fram í Bæjarbíói og hefst kl 17:00.

Á fundinum verður lögð megináherlsla á „þau málefni sem telja má að skipti hafnfirskt launafólk mestu máli,“ eins og segir í tilkynningu. „Þar má nefna húsnæðismál, ekki síst félagslegar lausnir í húsnæðismálum og leigumarkað, dagvistarmál út frá hagsmunum foreldra, barna og starfsfólks, málefni bæjarbúa af erlendum uppruna, útvistun verkefna og hvernig Hafnarfjarðarbær geti bætt þjónustu sína, orðið framúrskarandi og eftirsóttur vinnustaður.“

Fundurinn textatúlkaður á ensku

Á fundinum gefst oddvitunum færi á að kynna stefnu sinna framboða og sitja síðan fyrir svörum fundarmanna. Fundar- og umræðustjóri verður Andri Ólafsson, fyrrverandi fréttamaður.

Fundurinn fer fram á íslensku, en framsögur, spurningar og svör verða þýdd jafnóðum yfir á ensku og birt á textaskjá.

Slóð á Facebook-viðburð fyrir fundinn.

Mest lesið

Discover more from Bærinn okkar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading