Oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði segir að hefja þurfi vinnu við hönnun varnargarða svo hægt verði að bregðast við mögulegri hættu vegna eldgoss með skömmum fyrirvara. Full ástæða sé til að taka langtímaáhættumat Veðurstofunnar alvarlega en mikilvægt að missa ekki „kúlið“.

Ekki óvæntar fréttir en mikilvægt að vera viðbúin

Nýtt langtímaáhættumat vegna mögulegra eldgosa í kringum höfuðborgarsvæðið var til umræðu í pallborði oddvita framboðanna í Hafnarfirði á Vísi á miðvikudag. Þar sagði Guðmundur Árni Stefánsson, oddviti Samfylkingarinnar, að full ástæða væri til að taka áhættumatið alvarlega þó að niðurstöðurnar hafi ekki komið á óvart. „Gleymum því ekki að Hafnarfjörður er byggður á hrauni. Við erum bærinn í hrauninu, sem segir okkur það að þarna rann hraun einhvern tíma og getur gert það aftur. Hvenær það verður veit enginn,“ sagði Guðmundur Árni.

Guðmundur Árni Stefánsson, oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði.

Hafnfirðingar þurfi þó að vera undirbúnir. „Ég skynjaði það á ágætum fundi með íbúum í Vallahverfi að þar voru menn tiltölulega rólegir og yfirvegaðir vegna þess að þeir treysta því að við, sem erum kölluð til þess að stjórna bænum, búum þannig um hnútana að við verðum tilbúin.“

Varnargarðar og plan B fyrir neysluvatnið

Guðmundur Árni sagði mikilvægt að undirbúa hönnun varnargarða svo hægt væri að koma þeim upp með skömmum fyrirvara ef illa færi. „Varnargarða út frá Stórhöfða sem er rétt ofan við bæinn, eða ofar í hrauninu, þurfum við að hanna og gera klára. Við þurfum líka að fara í það verkefni að tryggja að við eigum plan B ef eitthvað skyldi ógna vatnsbólinu okkar í Kaldárbotnum,“ bætti Guðmundur Árni við.

Kaldárbotnar er eina vatnsból Hafnfirðinga. Það er á svæði þar sem Veðurstofa Íslands telur talsverðar líkur á gosupptökum. Meðal mótvægisaðgerða sem Veðurstofan leggur til vegna þessarar ógnar er hringtenging vatnsveitna á höfuðborgarsvæðinu.

Mest lesið

Discover more from Bærinn okkar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading