Árni Rúnar Þorvaldsson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, sakar oddvita Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði um upplýsingaóreiðu vegna dreifingar á súluriti sem hann viðurkennir að hafa látið gervigreind „kokka upp“. Árni Rúnar segir upplýsingaóreiðu óboðlega í opinberri umræðu um mikilvæg grundvallarmál eins og leikskólamál.

Þetta kemur fram í grein eftir Árna Rúnar sem birtist bæði á Vísi og Bænum okkar. Hann segir leikskólamál vera alvörumál sem snerta hagsmuni barnafjölskyldna í Hafnarfirði og starfsfólks leikskóla. Stjórnmálamenn beri því ríka ábyrgð þegar rætt er um jafn veigamikið mál og hér er á ferðinni. „Við verðum að nálgast málið af ábyrgð og tala með hreinskilnum hætti við foreldra, starfsfólk og íbúa vegna þess að þegar allt kemur til alls þá snýst þetta um hagsmuni og velferð barnanna,“ skrifar Árni Rúnar.

Vinnubrögð sem eiga ekki að sjást við stjórn bæjarins

Eins og Bærinn okkar sagði frá í gær viðurkenndi Orri Björnsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði, að hafa látið gervigreind „kokka upp“ tölfræði um inntökualdur í leikskóla sem hann og aðrir frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins dreifðu á samfélagsmiðlum. Tölfræðin reyndist kolröng, en þar voru bornar saman ólíkar tölur eftir því hvaða sveitarfélag átti í hlut. Hvorki Orri né aðrir frambjóðendur hafa fjarlægt efnið af sínum miðlum í kjölfarið.

Árni Rúnar segir það ekki kenna góðri lukku að stýra þegar flokkurinn sem hefur farið fyrir stjórn bæjarins síðustu tólf ár, Sjálfstæðisflokkurinn, skuli nýta sér upplýsingaóreiðu sem er kokkuð upp af gervigreind til þess að berja á Samfylkingunni. „Það er dapur vitnisburður um 12 ára stjórnarsetu Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði ef hann hefur ekki upp á neitt annað að bjóða. Þetta eru ekki boðleg vinnubrögð og þau grafa undan trausti á stjórnmálunum og pólitískri umræðu. Við megum ekki við því og vinnubrögð sem byggja á óskhyggju gervigreindarinnar til þess að klekkja á pólitískum andstæðingum eiga ekki að sjást við stjórn bæjarins,“ skrifar Árni Rúnar.

Kjósendur geti treyst Samfylkingunni

„Það eru sem betur fer bæjarstjórnarkosningar 16. maí nk. þar sem kjósendum gefst tækifæri til þess að velja annars konar vinnubrögð við stjórn bæjarins,“ skrifar Árni Rúnar og segir Samfylkinguna tilbúna til þess að taka við stjórn bæjarins að loknum kosningum. „Kjósendur geta treyst því að vinnubrögð okkar í meirihluta munu einkennast af gagnsæi, hreinskilni og raunsæi gagnvart flóknum og mikilvægum málum en ekki innihaldslausum glansmyndum og hvað þá upplýsingaóreiðu sem gervigreindin kokkar upp fyrir okkur. Það er kominn tími á breytingar í Hafnarfirði,“ skrifar Árni Rúnar að lokum.

Mest lesið

Discover more from Bærinn okkar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading