Eftir að hafa náð forystu gegn ÍBV í undanúrslitum Íslandsmóts kvenna í handbolta eru Haukakonur nú lentar 1-2 undir í einvíginu. Það þýðir ÍBV þarf bara einn sigur í viðbót til þess að tryggja sér farseðilinn í úrslitin gegn Val. Í deildarkeppninni endaði ÍBV í öðru sætinu á eftir Val sem varð deildarmeistari en Haukar enduðu í þriðja sæti. Viðureignir liðanna hafa verið jafnar og hart tekist á. Síðasta viðureign, sem fór fram í Eyjum, var tvíframlengd en Eyjakonur náðu að lokum að knýja fram eins marks sigur þar sem lokatölur urðu 38-37. 

Haukar þurfa því á sigri að halda í næsta leik, sem fer fram á Ásvöllum í dag kl. 15:00, ef þær ætla að tryggja sér oddaleik í Eyjum og koma veg fyrir að fara strax í  sumarfrí. Leikirnir hafa verið jafnir og spennandi, þar sem Haukar unnu fyrsta leikinn úti í Eyjum en ÍBV vann næstu tvo. Haukar þurfa því að leggja allt í sölurnar í leiknum í dag og ljóst að þær munu selja sig dýrt enda með gríðarsterkt lið. Allt útlit er því fyrir svakalegan leik á Ásvöllum í dag og við hvetjum allt Haukafólk og Hafnfirðinga til þess að standa við bakið á sínum konum, fjölmenna á leikinn á Ásvöllum og hvetja stelpurnar til sigurs.

Mest lesið

Discover more from Bærinn okkar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading