Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar:

Á kjörtímabilinu hefur Samfylkingin ítrekað lagt fram tillögu um að hefja undirbúning uppbyggingar á lífsgæðaíbúðum fyrir eldri íbúa á Sólvangssvæðinu. Meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks hefur jafnharðan vísað henni frá, sem kemur á óvart því í upphafi kjörtímabilsins lagði meirihlutinn sérstaka áherslu á að uppbyggingu íbúða fyrir eldri borgara yrði hraðað og tiltók Sólvangssvæðið sérstaklega. En í stað þess að nýta kjörtímabilið til undirbúnings ákveður meirihlutinn núna við lok þess að hefja vinnu við gerð 10 ára uppbyggingaráætlunar. Samfylkingin ætlar hins vegar að fylgja þessu mikilvæga máli eftir og fara í þessa uppbyggingu á næsta kjörtímabili í nýjum meirihluta. 

Skýrar tillögur starfshóps 

Að tillögu Samfylkingarinnar var starfshópur um uppbyggingu á íbúðum fyrir eldra fólk settur af stað síðla árs 2024 en slíkar íbúðir hafa ekki verið byggðar síðan 1992 á vegum bæjarins. Það var því mat hópsins að byggja þurfi að lágmarki 100 íbúðir árlega næstu 10 ár til þess að mæta uppsafnaðri og vaxandi þörf eldri íbúa í bænum. Hópurinn lagði til að uppbygging á 3 reitum yrði sett í forgang til að flýta fyrir framkvæmdum. Fyrsti kostur var uppbygging á tæplega 50 íbúðum á Sólvangssvæðinu, þar sem aðgengi að allri þjónustu er mjög gott. Það var því einkennilegt að meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks skyldi ekki geta stutt tillögu um að hefja undirbúning uppbyggingar á Sólvangssvæðinu þrátt fyrir fögur fyrirheit í upphafi kjörtímabilsins.

Tækifæri til breytinga í vor 

Það er sem betur fer tækifæri til breytinga núna í vor. Stuðningur við Samfylkinguna tryggir breytingar á stjórn bæjarins. Við jafnaðarfólk meinum það sem við segjum. Samfylkingin mun tryggja það að lífsgæðaíbúðir fyrir eldri íbúa verði byggðar í bænum fáum við til þess umboð kjósenda. Það er hægt að gera betur með því að setja X við S í sveitarstjórnarkosningunum 16. maí nk. Við erum sterkari saman!

Höfundur er bæjarfulltrúi og skipar 3. sæti á lista Samfylkingarinnar í Hafnarfirði fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.

Mest lesið

Discover more from Bærinn okkar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading