Félögin GOS Verk ehf. og Dalbrún ehf. hafa óskað eftir leyfi til að setja upp færanlegar húseiningar á lóð Strandgötu 82-84 sem í daglegu tali kallast Slippurinn. Einingarnar eiga að hýsa gufubað og búningaaðstöðu.
Þetta kemur fram í erindi sem lagt var fram á fundi umhverfis- og framkvæmdaráðs Hafnarfjarðar í gær. Í því kemur fram að í gufubaðinu verði boðið upp á leiddar gufustundir með tónlist, öndunaræfingum og hugleiðslu. Fólk skrái sig í tíma á netinu og greiði fyrir hvern tíma eða kaupi klippikort.
Framkvæmdin hugsuð til skemmri tíma
Í erindinu segir að aðilum sé kunnugt um að nýtt deiliskipulag sé að taka gildi fyrir Flensborgarhöfn og breyting á aðalskipulagi Hafnarfjarðar sé nú í auglýsingaferli. Framkvæmdin sé hins vegar hugsuð til skemmri tíma, enda sé um færanlegar einingar að ræða og því hægt að færa þær til eða flytja þær af svæðinu þegar uppbygging hefst. Um er að ræða 2-3 einingar sem telja alls um 50 fermetra.

Umhverfis- og framkvæmdaráð tók jákvætt í erindið en benti á að sækja þarf um stöðuleyfi með formlegum hætti til byggingarfulltrúa.










