Öldungaráð Hafnarfjarðar vill að steyptur veggur sem snýr að sjónum á útisvæði Sundhallar Hafnarfjarðar verði tekinn niður og glerveggur settur upp í staðinn. Við afgreiðslu síðustu fjárhagsáætlunar lagði Samfylkingin til aukið fjármagn svo hægt yrði að flýta framkvæmdum við útisvæðið en tillagan var felld.
Á fundi sínum 10. mars síðastliðinn skoraði öldungaráð Hafnarfjarðar á bæjaryfirvöld að taka niður steypta vegginn sem nú byrgir sjávarsýn sundlaugargesta og setja upp glervegg í staðinn. Við það telja fulltrúar öldungaráðs að svæðið verði bjartara og útsýni til sjávar einstakt.
Tillaga að endurbættu útisvæði ofan í skúffu
Hugmynd öldungaráðs er í samræmi við tillögur VA Arkitekta að endurbættu útisvæði laugarinnar sem hefur verið til umfjöllunar á vettvangi umhverfis- og framkvæmdaráðs í talsverðan tíma, eða frá árinu 2022. Málið var síðast tekið til umræðu í ráðinu í október 2024, þegar óskað var eftir uppfærðu kostnaðarmati vegna endurbóta útisvæðisins. Uppfært kostnaðarmat var 114 milljónir króna.
Tillögur VA Arkitekta gera ráð fyrir þremur heitum pottum á útisvæðinu auk kalds potts og upphækkuðu eimbaði með einstöku útsýni yfir sjóinn. Tillögurnar var lagðar fram í umhverfis- og framkvæmdaráði 30. nóvember 2022 og kynntar í tilefni 80 ára afmælis Sundhallarinnar í september 2023.

Samfylkingin vildi flýta framkvæmdum
Síðan þá virðist ekkert hafa gerst í málinu, en í fjárhagsáætlun þessa árs er þó gert ráð fyrir 70 milljóna króna framlagi til endurbóta Sundhallarinnar. Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar þann 3. desember síðastliðinn lögðu bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar til að framlagið yrði hækkað í 110 milljónir svo hægt yrði að „undirbúa og hefja framkvæmdir við endurbætur á útisvæði og tengja sundhöllina sjóböðum,“ eins og segir í greinargerð með tillögunni.
Í greinargerðinni segir að það ríki „samstaða um að hefja endurbætur við Sundhöll Hafnarfjarðar sem eru löngu tímabærar.“ Því sé lögð til hækkun framlags svo að hægt verði að ljúka endurbótum að mestu fyrir árslok 2026. Tillagan var felld af fulltrúum meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknar.











