Handboltabærinn Hafnarfjörður ber svo sannarlega nafn með rentu þessa dagana. Undanúrslitaeinvígi Hafnarfjarðarliðanna Hauka og FH hófst með látum á þriðjudaginn þegar fyrsti leikurinn í einvíginu fór fram á heimavelli FH-inga í Kaplakrika. Hafnfirðingar fjölmenntu á völlinn og stuðningsmenn liðanna létu vel í sér heyra og stemningin var gríðarlega góð. Eftir mikla baráttu og hörkuleik þar sem jafnt var á flestum tölum sigu heimamenn í FH framúr á lokamínútunum og unnu 27-21 og eru því komnir með 1-0 forskot í einvíginu en þrjá sigurleiki þarf til þess að vinna einvígið og komast í úrslitaeinvígið um Íslandsmeistaratitilinn. 

Veislan rétt að byrja

Það er því nóg eftir af handboltaveislunni í Hafnarfirði og hún heldur áfram í kvöld á Ásvöllum. Næsti leikur í einvíginu fer nefnilega fram á heimavelli Hauka á Ásvöllum í kvöld kl. 19:00. Á heimavelli munu Haukar vafalaust leggja allt í sölurnar til þess að jafna einvígið í kvöld en FH-ingar munu að sama skapi selja sig dýrt til þess að halda forystunni í einvíginu. Eitt er allavega ljóst að stálin stinn munu mætast í kvöld á Ásvöllum og leikmenn liðanna, sem og stuðningsmenn, munu gefa allt í leikinn. 

Fjölmennum á völlinn

Stemningin og spennan verður mikil – e.t.v. óbærileg fyrir einhverja, en við hvetjum Hafnfirðinga til fjölmenna á Ásvelli og styðja liðið sitt. Það verður enginn svikinn af þessari veislu. Hafnarfjörður er vagga handboltans á Íslandi og gríðarlega gaman að fá viðureign FH og Hauka í úrslitakeppni handboltans sem sýnir að handboltabærinn Hafnarfjörður stendur svo sannarlega undir nafni. 

Mest lesið

Discover more from Bærinn okkar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading