Óskar Steinn Ómarsson skrifar:
Vissir þú að það getur munað 125 þúsund krónum á mánaðarleigu fjölskyldu sem leigir á almennum leigumarkaði og fjölskyldu sem leigir íbúð af óhagnaðardrifnu leigufélagi? Eða að nær helmingur ráðstöfunartekna hafnfirksra leigjenda fer í húsaleigu? Þetta sýna gögn af vef Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um leigumarkaðinn í Hafnarfirði.
Húsnæðisbyltingin ekki náð til Hafnarfjarðar
Verkalýðshreyfingin og Reykjavíkurborg undir forystu jafnaðarmanna hafa leitt endurreisn verkamannabústaðakerfisins á undanförnum árum. Þessi húsnæðisbylting hefur ekki náð til Hafnarfjarðar, ef frá eru taldar 148 íbúðir á vegum Bjargs íbúðafélags í Hamranesi. Tæplega þúsund íbúðir á vegum Bjargs eru á framkvæmda- eða undirbúningsstigi um allt land en engar í Hafnarfirði.
Félagslegum íbúðum hefur ekki fjölgað að nokkru ráði á yfirstandandi kjörtímabili og raunar hefur þeim fækkað hlutfallslega – úr 9,4 í 8,7 íbúðir á hverja 1.000 íbúa. Engar stúdentaíbúðir hafa risið í bænum og meirihluti bæjarstjórnar hefur ekki orðið við ósk Byggingafélags námsmanna um byggingu íbúða fyrir námsmenn.
Verkamannabústaðir þrýsta niður leiguverði
Reykjavíkurborg gerði árið 2023 samkomulag við ríkið um húsnæðisuppbyggingu sem felur í sér að 30% nýrra íbúða í Reykjavík verði hagkvæmar íbúðir (s.s. á vegum óhagðardrifinna félaga) og 5% verði félagslegar íbúðir. Ef farið yrði eftir þessu í Hafnarfirði ættu um 223 hagkvæmar íbúðir og 37 félagslegar íbúðir að vera á byggingarstigi í bænum í dag.
Það munar um 125 þúsund krónur í heimilisbókhaldinu. Óhagnaðardrifin húsnæðisuppbygging er ein besta leiðin til að lækka húsnæðiskostnað fjölskyldna og auka ráðstöfunartekjur þeirra. Þá getur aukin hlutdeild óhagnaðardrifinna leiguíbúða á markaði þrýst niður almennu leiguverði, en það hefur hækkað langt umfram launaþróun á undanförnum árum.
Ráðumst í átak í félagslegri húsnæðisuppbyggingu
Hafnarfjarðarbær getur gert mun betur í því að bjóða hafnfirskum fjölskyldum upp á hagkvæmt húsnæði í bænum. Við eigum að ráðast í átak í félagslegri uppbyggingu húsnæðis, hvort sem um er að ræða félagslegar íbúðir á vegum bæjarins, húsnæði á vegum verkalýðshreyfingarinnar, stúdentaíbúðir eða íbúðir fyrir eldra fólk.
Höfundur er félagsmálafulltrúi hjá Verkalýðsfélaginu Hlíf og skipar 7. sæti á framboðslista Samfylkingarinnar í Hafnarfirði.










