Fjórir geimfarar lögðu í gærkvöldi af stað út í geim þar sem þeir eiga að fara á braut um tunglið og snúa aftur til jarðar á tíu daga tímabili. Hópur á vegum Björgunarsveitar Hafnarfjarðar, sem sinnti hálendisvakt norðan Vatnajökuls sumarið 2024, hitti geimfarana þar sem þeir voru við æfingar við Öskju.
Áhugasöm um björgunarsveitarstörf á Íslandi
Óskar Steinn Ómarsson, sem skipar 7. sæti á lista Samfylkingarinnar í Hafnarfirði fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar, var hópstjóri Björgunarsveitar Hafnarfjarðar á hálendisvakt norðan Vatnajökuls sumarið 2024. Hann segir að hópurinn hafi orðið spenntur þegar þau fréttu að geimfarar frá NASA væru við æfingar á svæðinu.
„Við dvöldum í Herðubreiðarlindum en þau voru við æfingar við Dreka [undir rótum Öskju]. Það kom ekkert annað til greina en að taka rúntinn til þeirra og reyna að ná smá spjalli,“ segir Óskar Steinn. Hann segir geimfarana hafa verið hinir viðkunnanlegustu og að þeir hafi líka verið forvitnir um störf björgunarsveita á Íslandi.
„Þetta var hið almennilegasta fólk og það sýndi starfi okkar ekki minni áhuga og virðingu en við þeirra. Þau vildu skiptast á límmiðum en því miður áttum við enga til að gefa þeim,“ segir Óskar. Félagar Björgunarsveitar Hafnarfjarðar hafi þó fengið fullt af NASA og Artemis-límmiðum til að taka heim.

Buðu geimförunum upp á kjötsúpu og plokkfisk
Meðal þess sem geimfararnir voru að æfa við Öskju voru viðbrögð við mögulegri brot- eða neyðarlendingu á tunglingu. „Þau voru að æfa sig í að rata á tiltekinn stað í landslagi sem líktist tunglinu,“ segir Óskar. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem tunglfarar á vegum NASA æfa sig á þessu svæði, en Neil Armstrong og félagar úr Apollo-áætlun NASA fóru í æfingaferðir þangað um miðjan 7. áratug síðustu aldar fyrir fyrstu tungllendinguna.
Óskar bendir á að æfingar geimfaranna hafi ekki verið mjög frábrugðnar þeim æfingum sem björgunarsveitarfólk á Íslandi stundar. „Í nýliðaþjálfun okkar leggjum við ríka áherslu á að æfa okkur að rata og athafna okkur í óvinveittu landslagi. Að því leyti er starf okkar ekkert svo frábrugðið starfi geimfara,“ segir hann kíminn.
Geimfararnir gengu frá Öskju norður fyrir Herðubreið og svo sem leið lá austur í Herðubreiðarlindir, þar sem Björgunarsveit Hafnarfjarðar var með bækistöð. „Við biðum eftir þeim og gáfum þeim íslenska kjötsúpu og plokkfisk að borða þegar þau voru búin með leiðangurinn,“ segir Óskar og segir að geimfararnir hafi verið mjög hrifnir af þessum hefðbundna íslenska mat. „Þau vildu helst fá þennan mat með sér út í geim í stað þess sem þeim er boðið upp á frá NASA,“ segir Óskar að lokum.











