Meirihluti skipulags- og byggingaráðs hefur samþykkt að auglýsa tillögu að beyttu deiliskipulagi Hvaleyrarholts suðausturs vegna Þorlákstúns. Tillagan gerir ráð fyrir að eingöngu verði byggð einbýlishús á svæðinu. Fulltrúar Samfylkingarinnar telja ofuráherslu á einbýli ekki henta ungu fólki og fyrstu kaupendum.
Hafi nær eingöngu úthlutað sérbýlishúsalóðum á kjörtímabilinu
Í deiliskipulagstillögunni er gert ráð fyrir 47 íbúðum á 46 lóðum, alls 45 einbýlishúsum og einu tvíbýli. Í bókun frá fulltrúum Samfylkingarinnar í skipulags- og byggingaráði segir að þeir fagni því að loksins sjái fyrir endann á vinnu við deiliskipulag Þorlákstúns sem hafi staðið yfir í nær fjögur ár. Þeir gagnrýna hins vegar „áherslur meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Hafnarfirði sem er að fjölga sérbýlum, en nær eingöngu hefur verið úthlutað sérbýlishúsalóðum á þessu kjörtímabili.“
„Slíkt húsnæði hentar ekki fyrstu kaupendum, en skortur er á hagkvæmum íbúðum fyrir þann hóp. Fram að þessu hefur núverandi meirihluti einkum verið að breyta áður samþykktu deiliskipulagi með það í huga að fækka íbúðum og þá sér í lagi fjölbýlum. Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja til að svæðið verði nýtt betur og einkum með fyrstu kaupendur í huga og ungar fjölskyldur,“ segir í bókun fulltrúa Samfylkingarinnar.
Íbúðum í Áslandi 4 fækkað um 100
Í bókuninni vísa fulltrúar Samfylkingarinnar meðal annars til þeirrar ákvörðunar meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks að fækka fyrirhuguðum íbúðum í hinu nýja hverfi Áslandi 4 um 100. Íbúðum í fjölbýlum var fækkað um 327 frá því sem fyrir var en íbúðum í sérbýlum var aftur á móti fjölgað um 227. Þessi breyting var samþykkt á fundi skipulags- og byggingaráðs þann 22. ágúst 2024.
Við afgreiðslu þeirrar breytingar bentu fulltrúar Samfylkingarinnar á að byggingarland væri ekki ótakmörkuð auðlind. Fá byggingarsvæði væru eftir í Hafnarfirði og því þyrfti að nýta þau svæði vel sem eru í boði. „Á sama tíma er mikil eftirspurn eftir íbúðarhúsnæði, sérstaklega hjá ungu fjölskyldufólki,“ sagði í bókun Samfylkingarinnar. Bentu fulltrúar Samfylkingarinnar á að fjölgun sérbýla á kostnað fjölbýla kæmi sér ekki vel fyrir ungt fólk sem leitar að hagvæmu húsnæði.
Engar íbúðir á vegum óhagnaðardrifinna leigufélaga
Eins og Bærinn okkar hefur fjallað um hafa bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar lagt til að allt að horft verði til þess við uppbyggingu nýrrar íbúðabyggðar að 30 prósent nýrra íbúða verði svokallaðar hagkvæmar íbúðir, svo sem á vegum óhagnaðardrifinna leigufélaga. Mánaðarleiga slíkra íbúða getur verið yfir 100 þúsund krónum lægri en íbúða á almennum markaði. Slíkum tillögum hefur meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar hafnað.
Ekki er gert ráð fyrir frekari íbúðauppbyggingu á vegum óhagnaðardrifinna leigufélaga í Hafnarfirði, hvorki í Áslandi 4 né í nýju skipulagi Þorlákstúns sem samþykkt var að auglýsa nú í vikunni.











