Samfylkingin í Hafnarfirði hefur sett í loftið rafræna könnun þar sem íbúum bæjarins gefst kostur á að senda inn hugmyndir og ábendingar um það sem má betur fara í bænum. Allar hugmyndir frá íbúum verða svo teknar saman og munu þær nýtast við að móta kosningastefnu Samfylkingarinnar fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Oddviti flokksins segir þetta lið í eflingu íbúalýðræðis í bænum.

Samfylkingin hlusti á fólk

„Við viljum heyra frá bæjarbúum og fá það beint í æð hvað liggur þeim á hjarta í aðdraganda kosninga,“ segir Guðmundur Árni Stefánsson, oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði. „Í sveitarstjórnum er mikilvægt að kjörnir fulltrúar eigi gott og milliliðalaust talsamband við kjósendur og þetta er liður í því.“

Guðmundur Árni bendir á að Samfylkingin hafi verið leiðandi þegar kemur að íbúalýðræði í Hafnarfirði og hún ætli sér að halda því áfram. „Komumst við í meirihluta munum við leggja mun meiri áherslu á samtal og samráð við bæjarbúa en nú er gert,“ segir hann og bætir við: „Samfylkingin hlustar á fólk!“

Hægt er að taka þátt í mótun kosningastefnu Samfylkingarinnar með því að fylla út rafræna könnun hér.

Mest lesið

Discover more from Bærinn okkar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading