Byggingafélag námsmanna óskaði eftir lóðum og samstarfi við Hafnarfjarðarbæ um uppbyggingu íbúða fyrir námsmenn, með bréfi til bæjarráðs árið 2023. Ekki var orðið við þeirri ósk heldur var erindinu vísað í vinnu við endurskoðun aðalskipulags, þar sem það virðist hafa dagað uppi.
Engar stúdentaíbúðir byggðar á kjörtímabilinu
Í svari við fyrirspurn fulltrúa Samfylkingarinnar í fjölskylduráði, sem lagt var fram 25. nóvember 2025, segir að engar leiguíbúðir fyrir námsmenn hafi verið byggðar í Hafnarfirði á yfirstandandi kjörtímabili Sjálfstæðisflokks og Framsóknar. Þar kemur þó fram að Byggingafélag námsmanna hafi þann 15. september 2023 óskað eftir lóðum og samstarfi við Hafnarfjarðarbæ um uppbyggingu stúdentaíbúða.
Bréfi Byggingafélags námsmanna var vísað til skipulags- og byggingaráðs þar sem það var lagt fram 5. október 2023. Meirihluti skipulags- og byggingaráðs ákvað þó að ganga ekki til samtals um uppbyggingu stúdentaíbúða heldur vísa málinu í vinnu við aðalskipulag Hafnarfjarðar 2025-2040.
Samfylkingin vildi samtal strax
Fulltrúar Samfylkingarinnar í skipulags- og byggingaráði lögðu fram bókun þar sem tekið var undir erindi Byggingafélags námsmanna og meirihlutinn hvattur til að hefja strax samtal um mögulegar lóðir fyrir stúdentaíbúðir. Í bókuninni segir að mikilvægt sé „að Hafnarfjarðarbær mæti kröfum námsmanna og skapi frekari tækifæri til búsetu í sveitarfélaginu.“
Í fundargerðum ráða og nefnda Hafnarfjarðarbæjar má þó sjá að ekkert hefur verið aðhafst í málinu síðan, þrátt fyrir skýran vilja Byggingafélags námsmanna um að reisa stúdentaíbúðir í Hafnarfirði. Í tillögu að nýju aðalskipulagi Hafnarfjarðar er þó fjallað um möguleikann á stúdentaíbúðum á hafnarsvæðinu.










