Bæði foreldraráð og ungmennaráð Hafnarfjarðar hafa lýst yfir stuðningi við tillögu Samfylkingarinnar um að frítt verði í strætó fyrir börn upp að 18 ára aldri í Hafnarfirði.

Fulltrúar Samfylkingarinnar í bæjarstjórn hafa ítrekað lagt til að hafnfirsk börn fái frítt í strætó en tillögunni hefur alltaf verið hafnað af meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknar.

Í febrúar lagði Samfylkingin að nýju fram tillögu þessa efnis í bæjarstjórn. Meirihlutinn treysti sér ekki til að samþykkja hana heldur vísaði henni til umsagnar í stjórn Strætó og hjá hinu nýstofnaða félagi um almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu.

Í kjölfarið hafa bæði ungmennaráð og foreldraráð Hafnarfjarðar lýst yfir stuðningi við tillöguna og hvatt meirihlutann til að samþykkja hana. Í bókun ungmennráðs segir að gjaldfrjálsar almenningssamgöngur geti skipt sköpum fyrir fjölskyldur með takmarkað fjármagn, efli sjálfstæði ungmenna og bæti aðgengi þeirra að skóla- og tómstundastarfi.

Oddviti Samfylkingarinnar í bæjarstjórn, Guðmundur Árni Stefánsson, hefur lýst því yfir að það verði eitt fyrsta verk Samfylkingarinnar, komist hún í meirihluta eftir kosningar, að innleiða gjaldfrjálsar almenningssamgöngur fyrir börn.

Mest lesið

Discover more from Bærinn okkar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading