Óskar Steinn Ómarsson skrifar:

Í kjölfar ákvörðunar bæjarstjórnar Hafnarfjarðar um lokun ungmennahússins Hamarsins var ég skipaður, fyrir hönd Samfylkingarinnar, í starfshóp um nýjar miðstöðvar ungmenna í bænum. Erindi starfshópsins var að móta þá þjónustu við ungt fólk sem átti að taka við hlutverki Hamarsins.

Í skýrslu starfshópsins, sem lögð var fram 13. nóvember 2024, lagði hann til að opnuð yrðu tvö ungmennahús. Eitt í húsnæði Nýsköpunarsetursins í gamla Lækjarskóla, með áherslu á almennt félagsstarf og listsköpun, og annað að Selhellu 7 á Völlunum, með áherslu á vinnu- og virkniúrræði og önnur sértæk úrræði fyrir félagslega einangruð ungmenni og ungmenni með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.

Þessar tillögur voru samþykktar af meirihluta fræðsluráðs, enda í samræmi við þær hugmyndir sem meirihlutinn sjálfur lagði fram í minnisblaði sem fylgdi lokun Hamarsins í maí 2024.

Heilum 10 mánuðum eftir að starfshópurinn lauk störfum, í september 2025, opnaði ungmennahúsið Hreiðrið loksins í húsnæði Nýsköpunarsetursins. Þá höfðu hafnfirsk ungmenni ekki átt neitt ungmennahús í 15 mánuði. Enn bólar þó ekkert á hinu sértæka ungmennahúsi að Selhellu 7.

Ekkert gerst í tvö ár

Á fundi fjölskylduráðs í vikunni var fyrirspurn Samfylkingarinnar frá 16. september sl., um stöðu þessa mála, loks svarað. Í svarinu kemur fram að búið sé að falla frá áformum um opnun vinnu- og virknideildar að Selhellu 7. Í staðinn sé „unnið að því“ í samstarfi við ungmennahúsið Hreiðrið að vera með hópastarf fyrir félagslega einangruð ungmenni og sértækt hópastarf fyrir ungmenni með flóttamannabakgrunn í samstarfi við Rauða krossinn. Þá sé nýbúið að ráða starfsmann sem eigi að vinna að virkniúrræðum fyrir ungt fólk sem stendur utan virkni. Með öðrum orðum er allt á byrjunarstigi ennþá.

Umfjöllun Kveiks á dögunum beindi sjónum okkar að því hversu alvarleg áhrif vanvirkni getur haft á líf ungs fólks. Fjallað var um grafalvarlegt úrræðaleysi sem blasir við ungu fólki á einhverfurófi.

Hér þurfum við Hafnfirðingar að gera mun betur. Bráðum verða tvö ár liðin frá því að skyndileg ákvörðun var tekin um lokun ungmennahússins Hamarsins. Tvö ár sem hefði verið hægt að nýta til að styrkja og betrumbæta þá þjónustu sem fyrir var. Í staðinn var allt rifið niður og nú, tveimur árum síðar, stöndum við frammi fyrir því að við erum á jafnvel verri stað, þegar kemur að þjónustu við ungmenni, en áður en lagt var af stað í þessa vegferð.

Höfundur er fyrrum starfsmaður ungmennahússins Hamarsins og frambjóðandi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.

Mest lesið

Discover more from Bærinn okkar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading