Fjölskylduráð Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum á þriðjudag að hækka sérstakan húsnæðisstuðning frá sveitarfélaginu þannig að hámarksstuðningur fari úr 100 þúsund krónum upp í 110 þúsund krónur. Ekki stóð til að samþykkja tillögu um hækkun á fundinum en í kjölfar bókunar frá fulltrúum Samfylkingarinnar ákvað meirihlutinn að taka skrefið. Árni Rúnar Þorvaldsson, bæjarfulltrúi og fulltrúi Samfylkingarinnar í fjölskylduráði, fagnar því að þrýstingurinn hafi borið árangur.
Leiguverð hækkað um 14 prósent á tveimur árum
Ástæða þess að málið var sett á dagskrá fjölskylduráðs var að Hafnarfjarðarbæ bárust uppfærðar leiðbeiningar frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) um framkvæmd sérstaks húsnæðisstuðnings. Var þetta gert í kjölfarið á breytingum sem gerðar voru á fjárhæðum í almannatryggingakerfinu þegar nýtt örorku- og endurhæfingarkerfi var innleitt. Þá var einnig tekið tillit til orlofs- og desemberuppbóta þess hóps sem fellur undir almannatryggingakerfið.
Samkvæmt leiguvísitölu HMS hefur leiguverð á Íslandi hækkað um rúm 14 prósent á síðustu tveimur árum. Þrátt fyrir það hefur sérstakur húsnæðisstuðningur hjá Hafnarfjarðarbæ staðið í stað frá árinu 2024, en samkvæmt leiðbeinandi reglum frá félagsmálaráðuneytinu ber sveitarfélögum að endurskoða upphæðina einu sinni á ári og skoða hvort tilefni sé til breytinga á fjárhæðinni.
Bókun Samfylkingarinnar kveikti undir meirihlutanum
Á fundi fjölskylduráðs í gær var lagt fram minnisblað um kostnað Hafnarfjarðarbæjar við það að hækka sérstakan húsnæðisstuðning upp í annars vegar 105 þúsund krónur og hins vegar 110 þúsund krónur. Fyrir fundinum lá ekki fyrir nein tillaga frá meirihlutanum um hækkun stuðningsins. Fulltrúar Samfylkingarinnar lögðu þá fram bókun þar sem þeir sögðu mikilvægt að upphæð sérstaks húsnæðisstuðnings hækki. Stuðningurinn hafi ekki verið hækkaður frá árinu 2024 en hann væri orðinn 110 þúsund krónur í Reykjavík.
Í kjölfar þessarar bókunar tóku fulltrúar meirihlutans stutt fundarhlé. Svo lögðu þeir fram tillögu um hækkun sérstaks húsnæðisstuðnings í 110 þúsund krónur, í samræmi við bókun fulltrúa Samfylkingarinnar. Tillagan var samþykkt samhljóða.
Þrýstingur hafi skilað árangri

Árni Rúnar Þorvaldsson, fulltrúi Samfylkingarinnar í fjölskylduráði, segir málið bera vott um stefnuleysi og verulegan kosningaskjálfta hjá meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknar. „Það hitti greinilega að viðkvæman blett hjá fulltrúum meirihlutans þegar Samfylkingin benti á að hámarksupphæð vegna sérstaks húnsæðisstuðnings hefði ekki hækkað í tvö ár en að búið væri að hækka hann í Reykjavík,“ segir Árni Rúnar. „Svo mikið var upphlaupið raunar að meirihlutinn tók fundarhlé til að ráða ráðum sínum og kom til baka með tillögu í anda bókunar Samfylkingarinnar.“
Árni Rúnar fagnar því að samþykkt hafi verið að hækka stuðning við leigjendur í Hafnarfirði. „Það er ánægjulegt að þrýstingur okkar í Samfylkingunni hafi skilað þessari niðurstöðu,“ segir hann að lokum.










