Að venju verður nóg um að vera fyrir alla fjölskylduna á sumardaginn fyrsta í Hafnarfirði. Skátafélagið Hraunbúar sjá um dagskrá á Víðistaðatúni og frambjóðendur Samfylkingarinnar grilla pylsur ofan í gesti og gangandi frá kl 12:00 og fram að skrúðgöngu og bjóða upp á kaffi og með því fram eftir degi.
Dagskráin hefst á víðavangshlaupi Hafnarfjarðar, en upphitun fyrir hlaupið verður á Thorsplani kl 12:00. Enginn þarf að fara svangur út í sumardaginn fyrsta, en frambjóðendur Samfylkingarinnar fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar ætla að manna grillið frá kl 12:00 og fram að göngu. Auk þess verður poppvélin sett í gang og opið hús verður hjá Samfylkingunni með kaffi og með því fram eftir degi. Samfylkingin er til húsa að Strandgötu 43, við Lækinn.
Dagskráin í heild
Kl. 8 – 17 Opið í sund í Suðurbæjarlaug og Ásvallalaug
Kl. 10 – 14 Opið hús hjá Brettafélagi Hafnarfjarðar, Selhellu 7, allir velkomnir
Kl. 12 Víðavangshlaup Hafnarfjarðar í miðbæ Hafnarfjarðar
Kl. 12 – 16 Grill og opið hús hjá Samfylkingunni að Strandgötu 43










