Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna sveitarstjórnarkosninganna 16. maí er hafin. Kjósendur með lögheimili í Hafnarfirði geta kosið hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu.
Kjósendur þurfa að framvísa persónuskilríkjum við kosninguna.
Nálgast má ýmsar almennar upplýsingar og leiðbeiningar um atkvæðagreiðslu utan kjörfundar á vef landskjörstjórnar.
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar við embætti Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu vegna sveitarstjórnarkosninga þann 16. maí 2026 fer fram sem hér segir:
Hlíðasmári 1, Kópavogi, jarðhæð, gengið inn á bakvið hús,
strætó nr. 21 og nr. 24 stoppa við Hlíðasmára 1:
- 17. apríl – 10. maí, kl. 10:00 – 18:00
- Lokað sumardaginn fyrsta, 23. apríl
- 11. maí – 15. maí, kl. 10:00 – 21:00
- Á kjördag laugardaginn 16. maí verður opið frá kl. 10:00 – 17:00 fyrir kjósendur sem ekki geta sótt kjörfund
Kjósendur skulu hafa meðferðis persónuskilríki.









