Óskar Steinn Ómarsson, sem skipar 7. sæti á lista Samfylkingarinnar í Hafnarfirði fyrir komandi sveitarstjórnarkosinngar, lætur Miðflokksmenn heyra það vegna umræðu um regnbogafána í grunnskólum. Þar rifjar hann upp regnbogafánann á Strandgötu 4 og biður fólk um að láta ekki plata sig í að trúa því að regnbogafánar í skólum séu vandamál.

„Fyrir rúmum áratug lagði ég til, fyrir hönd Ungra jafnaðarmanna í Hafnarfirði, að stór regnbogafáni yrði málaður á vegg Strandgötu 4. Erindið var samþykkt af fulltrúum allra flokka í bæjarráði og í nokkur ár blasti þetta fallega tákn fjölbreytileika og virðingar við öllum sem áttu leið um miðbæ Hafnarfjarðar.

Fáninn á Strandgötu 4 átti að vera minnisvarði „um brautryðjendastarf Hafnarfjarðar í málefnum hinsegin fólks,“ eins og segir í þessu 11 ára gamla erindi mínu. „Myndi fáninn virka sem skilaboð um að í Hafnarfirði sé hinsegin fólk velkomið og fjölbreytileikanum fagnað. Auk þess væri hann dagleg áminning um að halda áfram baráttunni fyrir fordómalausu samfélagi og jöfnum tækifærum allra.“

Mér þykir svo leiðinlegt að þurfa að gefa þessum þingmannskjána athygli, svo ég ætla ekki einu sinni að nefna hann á nafn. En þetta vil ég segja: regnboginn skiptir máli. Hann skiptir okkur hinsegin fólk máli því hann segir okkur að við búum í samfélagi þar sem við þurfum hvorki að fela okkur né skammast okkar fyrir það sem við erum. Og hann getur skipt sköpum fyrir börn á viðkvæmu þroskaskeiði sem upplifa því miður fordóma, aðkast og útskúfun í skólanum fyrir það að vera öðruvísi. Aðkast sem þingmannskjáninn og fylgjendur hans virðast óhræddir við að magna upp með málflutningi sínum.

Við meðborgara mína vil ég einnig segja: ekki láta þessa popúlista plata ykkur í að trúa því að regnbogafánar í skólum séu aðkallandi vandamál. Þeir eru það ekki.

Við Miðflokkstrúðana vil ég segja: hættið að nota hinsegin börn sem boxpúða í örvæntingarfullri tilraun ykkar til að komast í þægilega innivinnu sem sveitarstjórnarfulltrúar. Það er bæði ógeðslegt og vandræðalegt.

Þessi mynd er tekin sumarið 2019, sem mig minnir að hafi verið síðasta sumar regnbogans á Strandgötu 4.

Förum nú að tala um eitthvað sem skiptir máli.“

Mest lesið

Discover more from Bærinn okkar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading